Norræna húsið í Reykjavík,

Söfn á Íslandi


NORRÆNA HÚSIÐ
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Norræna húsið í Reykjavík er samnorræn menningarmiðstöð, sem er ætlað að styrkja menningarleg tengsl milli Íslands og annarra Norðurlanda.  Finnski arkitektinn Alvar Aalto teiknaði húsið, byggingu þess var lokið árið 1968 og það var opnað almenningi í ágúst sama ár.

Norðurlöndin fimm standa undir rekstri hússins.  Þar fer fram margs konar menningar- og fræðslustarfsemi með fyrirlestrum, sýningum, ráðstefnum, fundum og hljómleikum.  Í húsinu er rekið samtímabókasafn, sem nær yfir bækur frá öllum kimum Norðurlandanna á öllum tungum, sem þar eru talaðar.  Bókasafnið annast einnig útlán grafískra verka og tónlistar frá Norðurlöndum.

Nálægð hússins við Háskóla Íslands gerir margs konar samvinnu milli stofnananna mögulega, m.a. er þar vinnustofa fyrir norræna lektora og kennsluaðstaða.  Skrifstofa Norræna félagsins er líka í húsinu.  Dag hvern koma u.þ.b. 40 norræn dagblöð með flugi og liggja frammi á veitingastað hússins.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM