Saenautasel safn austurland,

Söfn Austurland


Gönguleiðir Ísland


SÆNAUTASEL
Kort
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Sænautasel var byggt á Jökuldalsheiði 1843.  Bærinn var í byggð í u.þ.b. 100 ár. Árið 1861 voru 16 bæir í byggð þar.  Þeir eyddust að mestu í Öskjugosi 1875.  Þáverandi Jökuldalshreppur endurbyggði bæinn árið 1992.  Hann er mjög áhugavert safn og aðeins fimm kílómetra að fara frá gamla þjóðveginum, sem liggur um Möðrudalsöræfi og Jökuldalsheiði.

Flestir Íslendingar og margir erlendir aðdáendur Haldórs Kiljan Laxness þekkja söguna um Bjart í Sumarhúsum í skáldverkinu „Sjálfstækk fólk”.  Hún lýsir lífsbaráttu sjálfstæðs kotbónda á afskekktri heiði.  Margir telja að fyrirmynd sögunnar sé komin frá Sænautaseli.

Heiðabúskapur var einnig viðfangsefni rithöfundanna Gunnars Gunnarssonar (Aðventa) og Jóns Trausta (Halla og heiðarbýlið).

Ferðaþjónustan, sem er rekin í bænum á sumrin, nær til leiðsögu um bæinn.  Þar er sögð saga fólksins, sem bjó á heiðinni og búskaparháttum.  Ekki má gleyma því, að heiðarbýlin áttu aðgang að stöðuvötnunum á heiðinni, sem var drjúg búbót (sjá veiðivötn á Austurlandi).  Síðan er hægt að setjast og njóta veitinga í bænum, þar sem komið er fullkomið eldhús.  Það er þekkt fyrir góðar lummur og súkkulaði.

Lilja Hafdís Ólafsdóttir
Merki í Jökuldal
701 Egilsstaðir
Sími:  855-5399 / 471-1086
Opið frá 1.  júni til 10. september 9-22 og samkvæmt samkomulagi.
jokulsa@centrum.is

SÆNAUTAVATN


BACK               Nat.is - Box 8593 108 Reykjavik- tel.: +354-898-0355 - nat@nat.is - about us - sources               HOME