 |
|
Sauðahús í
Álftaveri,

Söfn á Íslandi |
SAUÐAHÚS Í ÁLFTAVERI
.
|
.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Ferðaheimur |
Húsagerð
Íslendinga til forna bar svip af því efni sem tiltækt var á hverjum
stað á hverjum tíma. Í Álftaveri og Meðallandi vex mikið af melgresi,
og er vestara sauðahúsið í Álftaveri dæmi um nýtingu þess til
húsagerðar. Þar er melur notaður á svipaðan hátt og hrís í árefti
annarra þekktra torfhúsa. Melur var gjarnan lagður í þremur lögum á
húsþök. Neðsta lagið var lagt upp og ofan eftir þekjunni og melknippin
látin skarast. Næsta lag var lagt þvert ofan á og það efsta lá eins og
það neðsta. Efst var torfþekja. Grind eldra hússins hefur einnig þá
sérstöðu að þak sperrur hvíla á steinum sem ganga út úr grjótveggjunum
í sylluhæð.
Skammt frá sauðahúsunum er rúst fornbýlisins Kúabótar, og þegar unnið
var að uppgreftri þar árið 1972, varð mönnum ljóst að notkun mels í
húsþök væri staðbundin og nauðsynlegt að varðveita dæmi um hús slíkrar
gerðar. Húsin hafa verið í umsjá Þjóðminjasafns síðan 1974 og ráðist
var í endurbyggingu þeirra árið 1976. |

 |
|
TIL BAKA
Nat.is -
pósthólf 8593, 108 Reykjavik-
sími:
898-0355 - nat@nat.is-
um okkur
-
heimildir
HEIM |