|
Selið
er lítill torfbær af sunnlenskri gerð, reistur af Þorsteini
Guðmundssyni bónda árið 1912 og er ágætt sýnishorn af bæjum eins og
þeir gerðust í Öræfasveit fram á þriðja áratug tuttugustu aldar. Í
bænum er fjósbaðstofa á lofti þar sem menn nýttu sér ylinn frá kúnum
frá fjósinu sem er undir baðstofunni. Samtengd hús eru stofa og
útieldhús. Skammt frá bænum eru stórar hlöður með afar fornu
byggingarlagi, þar sem þakið er svokallað þríása með einn þakás eftir
mæni og sinn ásinn hvorum megin við hann og eru þeir bornir uppi af
innstöfum. Raftar ganga frá mæni og niður á veggi, en þakhella er þar
á ofan og torf efst.
Síðustu ábúendur í Selinu fluttu úr bænum árið 1946, og lagðist hann
þá í eyði. Selið hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá árinu
1972, og hefur bærinn verið endurbyggður á þess vegum. |