|
Nesstofusafn á
Seltjarnarnesi við Neströð er í umsjá Þjóðminjasafns Íslands en
rekið sem sjálfstæð stofnun. Það
er sérsafn á sviði heilbrigðismála og hefur það hlutverk,
að varðveita og miðla sögu lækninga á Íslandi. Danski arkitektinn Jacob Fortling
teiknaði húsið sem læknisbústað og apótek. Húsið var
gert upp á árunum 1978-86 undir umsjá Þorsteins Gunnarssonar
arkitekts.
Safnið dregur nafn sitt af Nesstofu, sem er
meðal elztu steinhúsa landsins, byggt á árunum
1761-63 fyrir fyrsta landlækninn, Bjarna Pálsson.
Húsið var gert upp í tveimur veigamiklum áföngum
og leitazt var við að færa það til upprunalegs horfs.
Að lokinni fullnaðarviðgerð
Nesstofu er gert ráð fyrir því, að hún verði að öllu leyti búin
sem líkast því, sem hún var á dögum Bjarna Pálssonar, bæði húsgögnum
og öðru innanstokks. Nýtt
safnahús verður reist norðan við Nesstofu og þar verður aðalsýningarsal
safnsins komið fyrir.
Nýja safnhúsið verður
á mörkum byggðar á Seltjarnarnesi og væntanlegs útivistarsvæðis
vestast á nesinu. Því er
gert ráð fyrir fjölbreyttri notkun þess en venja er um safnhús.
Skólafólk, sem koma til að kynna sér lífríki svæðisins, fær
aðstöðu til að vinna úr uppskeru sinni í kennslustofu safnsins.
Þetta svæði er
vinsælt til útivistar. Þarna
eru skokkarar og göngufólk á ferðinni árið um kring, golfvöllurinn
er skammt frá og fuglalífið á sér líka aðdáendur.
Á sumrin er fólk á seglbrettum úti fyrir ströndinni og á
veturna kemur skautafólk á Bakkatjörn og skíðafólk á gönguskíðum
sínum.
Kaffistofan í húsinu
ætti að koma sér vel fyrir þetta útivistarfólk og þá, sem vilja
taka lífinu með ró og horfa á aðra puða úti.
Útsýni yfir útivistarsvæðið og Faxaflóann verður með ágætum
þaðan.
Ætlunin er að nota
hluta sýningarsvæðis safnsins til að fjalla um jarðafræði, fuglalíf,
gróðurfar, fjörulíf, fornleifar og sögu svæðisins.
Þar verður líka hægt að halda fundi og minni ráðstefnur.
Safnið er opið alla daga á sumrin kl.
13:00-17:00. Einnig er tekið á móti hópum á veturna og
utan opnunartíma. Aðgangur er ókeypis.
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
annath@seltjarnarnes.is
Safnstjóri Lækningaminjasafns Íslands
Bæjarskrifstofa Seltjarnarnes
Austurströnd 2, IS 170 Seltjarnarnes
Tel:+354 595 9111 Mobile:+354 844 1036 Fax:+354 595 9101 |