|

Þuríðarbúð
var reist af Stokkseyringafélaginu í Reykjavík árið 1949 til
minningar um Þuríði Einarsdóttur, formann, og horfna starfshætti. Búðin stendur nálægt þeim stað, sem búð hennar stóð.
Þuríður formaður var fædd árið 1777, dáin 1863.
Hún fór í sinn fyrsta róður ellefu ára gömul á bát föður
sins, en 17 ára varð hún háseti upp á fullan hlut hjá bróður sínum.
Síðan stundaði hún sjósókn til 1843, þegar hún hætti sjómennsku
sökum heilsubrests. Lengstum
var hún formaður á sjómennskuferli sínum.
Þuríður þótti góður formaður, útsjónarsöm, varkár en
samt áræðin og vinsæl meðal háseta. Einstakt þótti, að kona færi
formaður á bát. Hún klæddist
karlmannsfötum að jafnaði vegna sjómennskunnar en til þess þurfti
leyfi sýslumanns. Á
Stokkseyri skiptu sjóbúðir eins og Þuríðarbúð tugum á seinni hluta
19. aldar. Þær voru
hlaðnar úr torfi og grjóti. Bálkar
voru meðfram veggjum og í þeim sváfu tveir og tveir saman og voru þeir
kallaðir lagsmenn. Sjóbúðirnar voru allt í senn, svernskáli, matstofa og
dagstofa vermanna.
Þuriðarbúð er
opið á öllum timum allt árið
|