|
Í Þjóðlagasetri sr. Bjarna
Þorsteinssonar á Siglufirði er varpað ljósi á þjóðlagaarf Íslendinga á
lifandi hátt með myndböndum, hljóðupptökum, ljósmyndum og handritum.
Þar gefur að sjá og heyra fólk úr öllum landshlutum kveða rímur, leika
á hljóðfæri, syngja tvísöng, fara með barnagælur og þulur, kyrja
sálmalög og segja frá tónlistariðkun í heimabyggði sinni.
Þjóðlögin eru mikilsverður þáttur í menningu þjóðarinnar. Þau sýna
hvernig hún stytti sér stundir í lífsbaráttunni, gerði sér glaðan dag
eða tókst á við sorgir sínar. Þjóðlagaarfurinn er ótrúlega
fjölbreyttur og sýnir hversu margbrotin tónlistarmenning okkar
Íslendinga var fyrr á tímum.
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði
Árleg þjóðlaghátíð er haldin á Siglufirði fyrstu viku júlímánaðar. Þar
koma fram íslenskir og erlendir listamenn auk þess sem fjölbreytt
námskeið eru haldin fyrir börn og fullorðna. Hátíðin hlaut Eyrarrósina
svokölluðu árið 2005 fyrir einstakt menningarstarf á landsbyggðinni.
Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu hennar,
siglo.is/festival. Netfangið er:
festival@siglo.is.
Tónleikar í Þjóðlagasetri
Tónleikar eru í þjóðlagasetrinu á sumrin. Nánari upplýsingar má finna
á heimasíðu þess, á siglo.is\setur. Netfangið er
setur@siglo.is.
Sr. Bjarni Þorsteinsson (1861-1938)
Þjóðlagasetrið er í Maðdömuhúsinu svokallaða, en þar bjó sr. Bjarni
Þorsteinsson tónskáld og safnaði íslenskum þjóðlögum á árunum
1889-1899. Hann var landsþekkt tónskáld og samdi fjölda einsöngs- og
kórlaga sem sungu sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Hann hóf að safna
íslenskum þjóðlögum um 1880 og eftir 25 ára starf gaf hann út bók sína
Íslensk þjóðlög á árunum 1906-1909 en hún hefur að geyma mörg hundruð
þjóðlög, bæði úr handritum og munnlegri geymd. Í tilefni af 100 ára
útgáfuafmæli þjóðlagasafnsins var Þjóðlagasetrið vígt sumarið 2006.
Bjarni Þorsteinsson starfaði alla tíð á Siglufirði. Auk þess að vera
prestur bæjarbúa gerðist hann mikilvirkur stjórnmálamaður á
uppgangstímum síldaráranna. Vegna þess hversu mikil áhrif hann hafði á
þróun bæjarfélagsins er hann af mörgum nefndur „faðir Siglufjarðar“.
Opnunartími Þjóðlagaseturs sr. Bjarna Þorsteinssonar er sem hér segir:
1. júní – 31 ágúst
1. september – 31. maí: fyrir hópa
samkvæmt samkomulagi
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar
Norðurgötu 1
580 Siglufjörður
Sími: 4672300
Netfang:
setur@siglo.is
Heimasíða: www.siglo.is/setur
AFÞREYING Á NORÐURLANDI - SÆKJUM
SIGLUFJÖRÐ HEIM!
|