|
Þverárbærinn
var reistur á seinni hluta nítjándu aldar af Jóni Jóakimssyni snikkara
og bónda á staðnum, sem annálaður var fyrir vandvirkni hvort sem var
við smíðar eða búskap. Í framhúsaröð eru tvær stofur, hvor til sinnar
handar við bæjardyr. Samtengd skemma er við aðra stofuna en þó ekki
gegnt á milli, en skammt sunnan við bæinn er önnur stakstæð skemma.
Inn af bæjargöngum er eldhús til annarrar handar og búr til hinnar.
Innst er baðstofa. Inn af eldhúsi eru önnur göng til fjóss og
brunnhúss.
Á Þverá er margt hugvitsamlega gert, t.d. er lækur leiddur gegnum
brunnhús innst í bænum svo að að heppileg kæling fengist til geymslu á
matvælum. Jafnframt var stutt að fara eftir rennandi vatni. Í gamla
torfbænum var Kaupfélag Þingeyinga, elsta kaupfélag landsins, stofnað
árið 1882. Þjóðminjasafn Íslands tók bæinn í sína vörslu árið 1968 og
var fljótlega hafist handa við viðgerðir og hlaut Þjóðminjasafnið
nokkurn fjárstyrk til viðgerða frá kaupfélögunum. Gert var við lambhús
árið 1998 og ný torfþekja sett á framhúsin árið 2002. |