|
Bustarfell er bær undir samnefndu felli í
Hofsárdal í Vopnafirði. Þjóðvegur # 85 liggur eftir klettabelti
þess, sem er 6-7 km langt, endilöngu. Uppi á Bustarfelli er Þuríðarvatn. Jörðin er allstór, talsvert skógi vaxin og að hluta
til friðuð.
Sama ættin hefur setið jörðina síðan
1532. Þá keypti Árni Brandsson, prestsonur
frá Hofi Bustarfell. Kona hans var Úlfheiður
Þorsteinsdóttir. Legsteinn þeirra hjóna er varðveittur
í Þjóðminjasafninu í Reykjavík.
Einhver fegursti og bezt varðveitti torfbær landsins
er að Bustarfelli. Elztu hlutar hans munu vera frá 1770,
þótt hann hafi breytzt mikið síðan. Fremri
stofan er frá 1851-52, miðbaðstofan og piltastofan eru frá
1877. Það var búið í honum til
1966.
Frægasti ábúandi Burstafells var vafalítið Björn
Pétursson (1661-1744), sýslumaður, sem var svo mikill fyrir sér í skapi, vexti og kröftum,
að öllum stóð ógn af honum. Hann fór sínu fram, hvað sem
tautaði og raulaði en var raungóður, þegar í nauðirnar rak
hjá fólki. Hann lét taka hollenzka duggu, búta hana í sundur
og áhöfnina húsa Bustarfellsbæ með viðunum.
Árið 1943 seldi Methúsalem Methúsalemsson
ríkinu gömlu bæjarhúsin með því skilyrði, að þeim yrði
haldið við. Hann varðveitti og safnaði ýmsum
nytjamunum í eigu fjölskyldunnar til safnins með mikilli
fyrirhöfn. Suma þeirra keypti hann á uppboðum og aðra
fékk hann gefins. Safnið var opnað opinberlega 1982 en
hafði verið einkasafn fram að því. Þjóðminjasafn
Íslands hefur umsjá með því. |