|
TILLAGA AÐ SÖGUFERÐ
Sjö daga hringferð um landið.
Það er jafnframt upplagt að
hefja ferðina um suðurland!
Sjá neðst á síðu.
Veður og færð!
. |
![[Flag of the United Kingdom]](images2/england_flag.jpg)
In English |
|
Dagur 1. Reykjavík-Borgarnes-Skagafjörður. |
Ekið frá Reykjavík um söguslóðir.
Eilífsdalur Kjós:
gengur suðaustur að hátindi Esju (914m) úr Kjósinni. Samnefndt býli er í mynni
hans. Helgi bjóla fékk Eilífi, skipverja sínum, bústað þar.
Ekið um
Hvalfjörð,
sem
er
m.a. tengdur Harðarsögu og hólmverja,
Geirshólmur: er næstum
kringlóttur klettshólmur, nærri Þyrilsnesi í Hvalfirði. Hans er getið í
Sturlungu og Harðar sögu.
Þyrill:
Þorsteinn
gullknappur, sem drap Hörð Grímkelsson, bjó að Þyrli (Harðarsaga og
Hólmverja).
Sandaþorp:
Leifar braggahverfisins í löndum Mið- og Litla-Sands, sem reis í síðari
heimsstyrjöldinni (Bretar og Bandaríkjamenn), og mannvirki, sem risu síðar,
aðallega í tengslum við Hvalstöðina, fékk nafnið Sandaþorp í munni manna.
Maríuhöfn:
Svartidauði barst þangað með klæðum Einars Herjólfssonar árið 1402.
Ferstikla á
Hvalfjarðarströnd var í upphafi bústaður landnámsmannsins Kolgríms hins
gamla frá Þrándheimi.
Ekið
um
Leirár- og
Melasveit: var löngum kirkjustaður og höfðingjasetur. Þar sat Árni
Oddsson (1592-1665) lögmaður eftir 1630 og við embættinu tók Bauka-Jón 1666
og hafði mikið umleikis að Leirá til 1684.
Melar:
í Leirár- og Melasveit voru fyrrum bústaður Melamanna, sem voru komnir af
Reykhyltingum og Borgarmönnum.
Ekið um
Borgarfjörð
Borg á Mýrum:
Prestsetrið og kirkjustaðurinn Borg stendur
við botn Borgarvogs, norðan og austan Borgarness.
Hvítárbakki:
Á 11. öld bjó bóndi að nafni Sveinn að Hvítárbakka (Bæjarsveit). Grettir
Ásmundason stal frá honum merinni Söðulkollu og sendi honum boð um, að hann
hyggðist eiga næturstað að Gilsbakka.
Stafholt í
Borgarfirði:
Í Egilssögu er getið um
liðveizlubeiðni Steinars Önundarsonar við Einar goðorðsmann gegn Þorsteini
Egilssyni á Borg. Snorri Sturluson bjó í þrjú ár að Stafholti og gifti
þaðan dóttur sína Þórdísi Þorvaldi Vatnsfirðingi.
Reykholt: í
Reykholtsdal er einhver merkasti sögustaður landsins,
ekki sízt vegna búsetu Snorra Sturlusonar.
Kalmanstunga:
Nafn bæjarins er komið frá landnámsmanninum Kalmani hinum
suðureyska. Hann flutti byggð sína frá Katanesi eftir að synir hans
drukknuðu í Hvalfirði.
Geitland:
Samkvæmt Landnámu nam Úlfur Grímsson Geitland og miklar ættir er frá honum
komnar, þ.á.m. Sturlungar.
Heggsstaðir: Í Egilssögu
er getið landnámsmannsins Heggs á Heggsstöðum. Þegar Egill Skallagrímsson
var sjö ára var hann að leik við Grím, 11 ára son Heggs, og varð undir í
leiknum.
Söguslóðir á Vesturlandi:
Vesturland Menning og Saga!
Söguslóðir á Vestfjörðum:
Vestfirðir
Menning og Saga!
Söguslóðir Reykjavik:
Reykjavík
og nágreni Menning og saga!
Ferðakort
nat.is:
Borgarfjörður!
Áhugaverðir
staðir Vesturland -
Gististaðir á vesturlandi
Áhugaverðir
staðir
Vestfirðir
- Strandir
Frá Borgarfirði er
ekið yfir Holtavörðuheiði til
Norðurlands. Það
eru margir áhugaverðir staðir á leiðinni og víða hægt að á.
Upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn eru á Hvammstanga og í Varmahlíð.
Bjarg í
Miðfirði: Bjarg er skammt austan Miðfjarðarár í hálsbrúninni, þar sem
hátt ber. Jökulsorfinn klapparkollur norðan við túnið er nafngjafi
bæjarins.
Vatnsdalur:
Vatnsdalur
er grösugur og búsældarlegur. Ingimundur gamli nam þar land. Skógarlundur í
dalnum er helgaður dóttur hans, Þórdísi, fyrsta innfædda Húnvetningnum.
Hof:
er í austanverðum Vatnsdal. Samkvæmt Landnámu settist
Ingimundur gamli Þorsteinsson þar að og nam allan dalinn upp frá Helgavatni
og Urðavatni austan ár. Vatnsdælasaga fjallar um Ingimund og hans ættingja.
Haukagil: er í Vatnsdal og dregur nafn af samnefndu gili, sem var nefnt
eftir tveimur berserkjum, sem gerðust fjölþreifnir til kvenna og kúguðu
bændur í nágrenninu með fjárkröfum og eignaupptöku.
Borgarvirki:
er áberandi kennileiti, þegar ekið frá Víðihlíð norður yfir Víðidalsá.
Samkvæmt munnmælum sátu Borgfirðingar með óvígan her um Borgarvirki og
álitu, að brátt færi að þrengjast um matföng hjá Húnvetningum
Stóra-Giljá:
er í þjóðbraut rétt við austanvert mynni Vatnsdals í Húnavatnssýslu. Þaðan
var fyrsti kristinboðinn á Íslandi, Þorvaldur Koðránsson hinn víðförli.
Húnaflói: milli Stranda og
Skaga er stærstur norðlenzkra fjarða. Árið 1244 háðu Kolbeinn ungi Tumason
og Þórður kakali einu sjóorrustuna
Upplagt að gista í
Skagafirði.
Söguslóðir á Norðurlandi:
Norðurland Menning og Saga
Ferðakort nat.is:
Norðvesturland Hvammstangi og Bönduos svæðið og
Skagafjörður
Áhugaverðir staðir Norðurland
-
Gististaðir á Norðurlandi

Hvammstangi
Upplýsingamiðstöð ferðamanna
Brekkugata 2 -
530 Hvammstangi
selasetur@selasetur.is
Skagafjörður er eitthvert söguríkasta svæði landsins.
Þegar ekið er niður þjóðveg 1
til austurs um Stóra-Vatnsskarð er komið í
Varmahlíð
í hlíðum Reykjarhóls. Þar er upplýsingaþjónusta
fyrir ferðamenn.
Flugumýri:
Flugumýri er bær og kirkjustaður í Blönduhlíð.
Sturlunga lýsir þessum atburðum, þegar óvinaher kom að bænum árið 1253 til
að standa yfir höfuðsvörðum Gissurar.
Glóðafeykir
(910m) blasir við sjónum þeirra, sem koma akandi úr vestri niður í
Skagafjörð af Stóra-Vatnsskarði. Árið 1551 sendi Danakonungur hermenn
sjóleiðis til Íslands til að berja niður mótþróa Norðlendinga gegn
siðbótinni eftir að Jón Arason biskup hafði verið líflátinn.
Geldingaholt
er bær og fyrrum kirkjustaður í Seyluhreppi í Skagafirði. Bærinn
stendur á hæð austan í Langholti. Sóknin var aflögð 1768 og sameinuð
Glaumbæjarsókn. Sturlunga segir frá bardaga í Geldingaholti árið
1255, þar sem Hrafn Oddsson og Eyjólfur Þorsteinsson gerðu aðför að Oddi
Þórarinssyni, sem fór með völd í Skagafirði fyrir hönd Þórðar
Sighvatssonar kakala. Oddur varðist vel, en lét þó líf sitt þar.
Geldingaholtsbardagi
Glaumbær:
Sögu
húsanna að Glaumbæ má rekja til nokkurra tímabila á 18. og 19. öld en þau
voru öll reist í ríkjandi stíl í sveitum landsins fram til aldamótanna 1900,
Vallhólmur (Hólmurinn) er flatlendið milli Húseyjarkvíslar og
Héraðsvatna, aðallega framburður Jökulánna. Þarna fengu Sturlungar hugboð um
hin miklu örlög, sem biðu þeirra
Tindastóll: Þjóðsagan
segir, að óskasteinar fljóti upp í tjörninni hverja Jónsmessunótt,
en ekki eru allir, sem leggja leið sína þangað jafnheppnir.
Selvík á
Skaga er bezti lendingarstaður Skagafjarðarmegin á Skaga.
Kolbeinn ungi Arnórsson fór þaðan með 400 manna flota sinn á Jónsmessunótt
1244 til Vestfjarða, þar sem hann ætlaði að finna Þórð kakala fyrir.
Húnaflói: milli Stranda
og Skaga er stærstur norðlenzkra fjarða. Árið 1244 háðu Kolbeinn ungi
Tumason og Þórður kakali einu sjóorrustuna.
Grettislaug: hvarf í
hafróti árið 1934. Hún var grafin upp árið 1992 og endurgerð. Grettissaga
segir frá því, að eldur hafi slokknað í Drangey hjá þeim bræðrum Gretti og
Illuga vegna slælegrar gæzlu þrælsins Glaums.
Drangey:Þjóðsagan
segir, að tvö tröll, karl og kerling, hafi verið að leiða kvígu yfir
fjörðinn til nauts en orðið að steinum. Sunnan eyjar stendur Kerlingin enn
þá en Karlinn, sem var norðan eyjar er horfinn í hafið.
Málmey:
er stærri eyjan af
tveimur á Skagafirði. Í Sturlungu segir
frá hremmingum Guðmundar biskups Arasonar.
Árið 1221 varð hann að flýja Hólastól með miklu föruneyti undan Tuma
Sighvatssyni og Skagfirðingum, sem hótuðu að rýma staðinn.
Hólar í Hjaltadal:
Skólasetur og kirkjustaður í Hjaltadal. Um 1100 átti Illugi Bjarnason
prestur jörðina.
Sléttuhlíðarvatn: er í Fellshreppi í
austanverðum Skagafirði. Á
landnámsöld bjó um skeið í Hrolleifsdal Hrolleifur mikli og Ljót, móðir
hans. Hún var göldrótt og ill viðskiptis.
Fyrrum Kirkju og sögustaðir í Skagafirði
Söguslóðir á Norðurlandi:
Norðurland Menning og Saga
Ferðakort nat.is:
Skagafjörður
Áhugaverðir staðir Norðurland
-
Gististaðir á Norðurlandi

Varmahlið
Upplýsngamiðstöð ferðamanna
560 Varmahlid
Tel.: 455-6161
info@skagafjordur.is
|
Dagur 3. Skagafjörður
-Akureyri. |
Þaðan er haldið áfram yfir Öxnadalsheiði til Akureyrar.
Hrafnagil: Hrafnagil er
stórbýli frá fornu fari, fyrrum kirkjustaður og prestssetur í
Hrafnagilshreppi, 12 km sunnan Akureyrar.
Möðrufell: er
bær í Hrafnagislhreppi í Eyjafirði. Ari Jónsson, sonur Jóns Arasonar
biskups, bjó þar.
Möðruvellir: í
Hörgárdal eru höfðingjasetur og stórbýli frá fornu fari.
Munkaklaustur var stofnað þar 1296.
Gásir:
Gásir var
fyrrum fjölsóttasti verzlunarstaður Norðurlands, sunnan Hörgárósa og
norðan samnefnds bæjar (nú Gæsir), sem var fyrst getið í heimildum á 13.
og 14. öld.
Myrká:
Myrká
er bær og fyrrum prestssetur og kirkjustaður í Hörgárdal.
Einhver frægasta draugasaga í íslenzkum þjóðsögum er ættuð
þaðan.
Munkaþverákirkja: Sturlungareitur er í kirkjugarðinum. Þar er talið, að Sighvatur
Sturluson, synir hans, sem féllu í bardaganum á Örlygsstöðum, og
Þorgils skarði hvíli.
Munkaþverá:
Sólveigarmál
komu upp árið 1308 og ollu miklum ýfingum milli prestanna á Munkaþverá
og Bægisá. Látentíus Kálfsson,
umboðsmaður Hólabiskups, blandaðist í málið svo að næstum kom
til blóðugs uppgjörs í kirkjunni á Munkaþverá, þegar hann og
Þórir Haraldsson ábóti tókust á.
Söguslóðir á Norðurlandi:
Norðurland Menning og Saga
Ferðakort nat.is:
Akureyri &
Eyjafjörður
Áhugaverðir staðir
Norðurland -
Gististaðir á Norðurlandi

Akureyri
Upplýsngamiðstöð ferðamanna
Strandgotu 12
600 Akureyri
Tel: +354-450-1050
info@visitakureyri.is
Dagur 4. Akureyri-Mývatn.
|
Þá er stefnt austur yfir Víkurskarð eða um Dalsmynni með
viðkomu í
Laufási: Gamli
bærinn í Laufási, sem nú stendur og er í umsjá þjóðminjavarðar, var
byggður um miðja 19. öld sem prestssetur. Elzta bæjarhúsið var reist um
1840.
Ljósavatn: er
stöðuvatn, bær og kirkjustaður í Ljósavatnsskarði nærri mynni Bárðardals.
Fram að aldamótunum 1900 var þar þing- og samkomustaður héraðsins og
barnaskóli var starfræktur á árunum 1908-14. Staðurinn er þekktastur fyrir
búsetu hins heiðna goða Þorgeirs Þorkelssonar í kringum aldamótin 1000.
Þorgeirskirkja var vígð árið 2000, þegar Íslendingar héldu
kristnitökuhátíð sína.
Ekið um
Fnjóskadal að Goðafossi:
Samkvæmt
Kristnisögu á Þorgeir Ljósvetningagoði og lögsögumaður að hafa
kastað goðum sínum í fossinn eftir að kristni var lögtekin árið 1000 og
fossinn fékk nafn sitt af því,
og þaðan til Mývatns. Þar er af svo mörgu að
taka, að velja verður áhugaverðustu staðina.
Söguslóðir á Norðurlandi:
Norðurland Menning og Saga
Ferðakort nat.is: Maps
Husavik til Akureyrar
<>
Myvatn svæðið
Áhugaverðir staðir
Norðurland -
Gististaðir á Norðurlandi

GALDRAR
GALDRABRENNUR
NORÐURLANDI
660 Mývatn
Dagur 5. Mývatn-Húsavík-Ásbyrgi-Dettifoss-Egilsstaðir.
|
Eftir hálftíma akstur frá Mývatni blasir Húsavík við.
Þar er margt að sjá og gera, en þaðan er haldið yfir
Tjörnes.:
er giljóttur og nokkuð hálendur skagi milli Skjálfanda og Öxarfjarðar
Keldunes
er bæjahverfi í Kelduhverfi, alls sex samtýnis bæir. Þar í nágrenninu eru
Keldunesbrunnar, stór bullaugu við hraunbrúnina. Þarna var þingstaður
sveitarinnar og fæðingarstaður Skúla Magnússonar (1711-94), fyrsta
íslenzka landfógetans.
Ásbyrgi: Talið er, að Ásbyrgi hafi myndazt
við tvö hamfarahlaup, annað fyrir 8-10 þúsund árum en hið síðara fyrir
u.þ.b. 3 þúsund árum. Síðan hefur Jökla fært sig til austurs. Þjóðsagan
segir, að hinn áttfætti hestur Óðins, Sleipnir, hafi stigið þar niður
fæti, þegar goðið var á yfirreið. Ásbyrgi er hluti þjóðgarðsins í
Jökulsárgljúfrum (Vatnajökulsþjóðgarði).
og áfram að Dettifossi,
skoða
Hljóðakletta
og
Hólmatungur.
Eftir það er ekið suður á hringveginn og alla leið til Egilsstaða.
Aðalból er innsti bær í
Jökuldalshreppi og meðal þeirra bæja, sem eru lengst frá sjó á landinu,
100 km í Héraðsflóa og 60 km í botn Berufjarðar. Bærinn er þekktur úr sögu
Hrafnkels Hallfreðarsonar Freysgoða.
Sögustaðir í nágreni Egilsstaða:
Eiðar: Fyrrum
voru Eiðar stórbýli, en nú er þar skólasetur Menntaskólans á Egilsstöðum
og kirkjustaður. Katólskar bændakirkjur á staðnum voru helgaðar Maríu
guðsmóður.
Gröf:
er eyðibýli í Eiðaþinghá. Þar varð maður nágranna sínum bana í
afbrýðiskasti 1729 með því að skera næstum af honum höfuðið.
Unaós: Unaós
er austasti bær í Hjaltastaðaþinghá við ósa Selfljóts. Landnámsmaðurinn
þar var Uni Garðarsson (Svavarssonar), sem kom til Íslands í erindum Haraldar hárfagra,
sem vildi ná landinu undir sig.
Söguslóðir:
Austurland menning og Saga
Ferðakort nat.is:
Ásbyrgi
& Dettifoss
<>
Austurland
Áhugaverðir
staðir Norðurland -
Gististaðir á Norðurlandi
Áhugaverðir staðir Austurlad -
Gististaðir
á Austurlandi

Egilsstadir
Upplýsngamiðstöð ferðamanna
Kaupvangur 10
700 Egilsstadir
Tel.: 471-2320
Fax: 471-8363
east@east.
Dagur 6. Egilsstaðir-Höfn-Jökulsárlón-Skaftafell.
|
Skemmtilegast er að þræða Austfirðina. Þá er ekið um
Fagradal til Reyðarfjarðar og áfram suður. Margir aka um
Skriðdal á þjóðvegi 1 niður í Breiðdal eða um Öxi niður í
Berufjörð, sem er stytzta leiðin, eða komið við á Neskaupsstað.
Viðfjörður: Öldum saman var reimt á bænum í Viðfirði og upp úr
sauð fyrir miðbik 20. aldar.
Breiðdalseldstöðin: Breiðdalseldstöðin er forn megineldstöð í
Breiðdal og Berufirði, sem enski jarðfræðingurinn George D.L.
Walker hefur rannsakað ítarlega ásamt öðrum slíkum á Austurlandi.
Fossá-Fossárdalur: Nykurhylur er undir neðsta fossinum.
Þar var nykur, sem lengi var reynt að losna við en það tókst
ekki fyrr en skírnarvatni var hellt í ána eftir skírn á bæ í
dalnum.
Gautavík: Gautavík
er bær við norðanverðan Berufjörð.
Talið er að Björn sviðinhorna hafi búið að Hamri.
Hinn 7. júlí 1627 létu alsírskir sjóræningjar greipar sópa
að Hamri og tóku 13 manns með sér.
Geithellnadalur: Geithellnar eða Geithellar eru fornt
höfuðból. Talið er, að þeir fóstbræður Ingólfur Arnarson og
Hjörleifur Hróðmarsson hafi haft þar vetursetu í fyrri ferð sinni
til Íslands
Hamarsdalur: Bærinn Hamar er norðan Hamarsár við botn
fjarðarins. Þar var bænhús fyrrum, sem var þjónað frá Háli, en er
löngu aflagt. Í túninu er eitt margra völvuleiða á Austfjörðum.
Hof í Álftafirði:
Síðu-Hallur bjóð þar áður en hann flutti að
Þvottá eftir að dökkar dísir höfðu drepið Þiðranda, son
hans. Í Hofstúni sést
Þiðrandalág, þar sem hann var drepinn.
Séra Bjarni Guðmundsson var síðasti katólski presturinn á
Hofi. Hann stóð einn presta í Múlaþingi gegn boðun hins nýja siðar
og lét af prestskap fremur en að gera það.
Þvottá: Þvottá
er syðsti bær í Álftafirði. Hallur
Þorsteinsson, Síðu-Hallur, sem var meðal kunnustu landsmanna á söguöld,
bjó þar í kringum aldamótin 1000.
Hann tók við Þangbrandi presti og kristniboða einn vetur og tók
skírn ásamt heimafólki sínu í ánni við bæinn og síðan var hún
kölluð Þvottá.
Hvalnes: Hvalnes í Lóni er austasti
bær í Austur-Skaftafellssýslu og stendur undir Eystrahorni,
sem er hrikalegt og snarbratt fjall að mestu úr gabbró og
granófýr. Skriðurnar við rætur þess eru gróðurlausar.
Ekki er mikið úr vegi að kíkja á
Höfn
áður en haldið er að Jökulsárlóni.
Jökulsárlón:
Fyrir 1950
rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli u.þ.b. 1½ km
til sjávar. Síðan hefur jökullinn hörfað og sístækkandi lón
myndazt.
Svínafell:
Svínafell í Öræfum var eitthvert mesta höfuðból Austurlands á
fyrri tíð. Njálssaga segir okkur frá búsetu Flosa Þórðarsonar þar
eftir árið 1000.
Þjóðgarðurinn Skaftafell:
Eftir stofnun
þjóðgarðsins Vatnajökuls hinn 7. júní 2008 var gestastofan í
Skaftafelli tileinkuð öllum þjóðgarðinum. Gestastofa Þjóðgarðsins
er líka á Kirkjubæjarklaustri.
Vatnjökull:
Goðaborg (1425m) er hnjúkur uppi af Hoffellsfjöllum í Hornafirði.
Hún líkist húsi úr fjarska. Þangað flúðu hin heiðnu goð,
þegar kristni var lögtekin.
Söguslóðir:
Austurland
Ferðakort nat.is:
Mið austurland
<>
Suðausturland
<>
Skaftafell & Jökulsárlón
Áhugaverðir staðir Austurlad -
Gististaðir
á Austurlandi
Dagur 7. Skaftafell-Kirkjubæjarklaustur-Vík-Reykjavík
|
Dagurinn hefst með akstri yfir Skeiðarársand til
Kirkjubæjarklausturs, yfir Eldhraun og Mýrdalssand til Víkur. Þá taka
við Dyrhólaey, Skógafoss, Seljalandsfoss og Suðurlandsundirlendið áður en
höfuðborgarsvæðið birtist framundan.
Lómagnúpur: Gnúpsins
er getið í Njálssögu í tengslum við draum Flosa á Svínafelli, þegar
hann sá jötuninn ganga út úr fjallinu.
Orrusstuhóll: Þjóðsaga segir frá tveimur ölduðum bændum af
Síðu, sem hittust aldrei án þess að skattyrðast. Þeir dóu með
skömmu millibili og voru báðir grafnir uppi á hólnum.
Áður er komið að Kirkjubæjarklaustri eru
Dverghamrar eru brimsorfnir blágrýtisstuðlar skammt austan
Foss á Síðu. Þar eru tvær fallegar klettaborgir, sem eru
skoðunarverðar.
Kirkjugólf er í túninu rétt austan Kirkjubæjarklausturs.
Kirkjubæjarklaustur:
Kirkjubæjarklaustur á Síðu hét áður
Kirkjubær og var þar löngum stórbýlt og má segja að svo sé enn.
KAPELLA sr.
Jóns Steingrímssonar:
Séra Jón Steingrímsson liggur grafinn í kirkjugarðinum og legsteinn á gröf
hans, fimmstrendur blágrýtisstuðull.
Kúðafljót: Samkvæmt Landnámabók segir af
Vilbaldi: „Hann fór af Írlandi og hafði skip það, er Kúði hét; hann
kom í Kúðafljótsós.
Áður er komið að
Vík í
Mýrdal er
Hjörleifshöði:
er 221 m hátt móbergsfell á Mýrdalssandi suðvestanverðum. Samkvæmt
Landnámu var þar fjörður fyrrum með botn inn að þvi.
Kerligardalur:
Kerlingadalsá rennur um dalinn úr fjöllunum norðaustan
Víkur. Líklega hefur Kerlingarfjörður gengið inn í fjöllin til
forna.
Pétursey: er stakt
móbergsfjall (275m) austan Sólheimasands í Mýrdal. Fjallið hét
áður Eyjan há. Það er mjög gróið og merki sjást um hærri
sjávarstöðu fyrrum. Á sturlungaöld bjuggust 200 manns til varnar
uppi á fjallinu.
Skógafoss: Þrasi
bjó fyrstur að Skógum. Sagt
er, að hann hafi fólgið gullkistu í helli bak við Skógafoss og að
það glitri í gull Þrasa gegnum vatnsúðann, þegar sólin skín á
fossinn.
Ásólfsskáli: er bær og
kirkjustaður undir Vestur-Eyjafjöllum. Landnámabók segir frá írskum,
kristnum manni, Ásólfi alskik að nafni.
Paradíarhellir:
Vigfús
Erlendsson á Hlíðarenda, lögmaður og hirðstjóri 1515, var
maður ákaflega ríkur og mikill höfðingi. Hann átti Guðrúnu
Pálsdóttir lögmanns á Skarði Jónssonar.
Hvolsvöllur: er kauptún í austanverðri Rangárvallasýslu, sem
fór að byggjast á fjórða áratugi 20. aldar,
þegar brýr voru komnar á flestar ár í grenndinni.
Bergþórshvoll:
Njálssaga er
víðlesnust Íslendingasagna. Hún segir m.a. frá Njáli Þorgeirssyni,
konu hans Bergþóru, börnum þeirra, vinum og tengdafólki.
Keldur eru stórbýli og
kirkjustaður á Rangárvöllum. Þær voru í Keldnaþingum, sem voru
aflögð 1880 og samtímis var sóknin færð að Odda.
Rangárkuml:
Fornmannakumlanna, 2½ km
austan Keldna á Rangárvöllum, var fyrst getið í upphafi 19. aldar.
Þau eru báðum megin núverandi leiðar um Miðveg. Margir menn voru
greinilega grafnir á öðrum staðnum,
Þórólfsfell: Þórólfsfell (574m) er austan byggðar í Fljótshlíð. Landnámabók segir
frá landnámi Þórólfs Askssonar vestan Fljóts milli tveggja Deildaráa og
að systursonur hans, Þorgeir gollnir, hafi búið þar síðan. Hans sonur
var Njáll á Bergþórshvoli, sem hafði þar einnig bú (Njálssaga).
Stóra-Hof
við Eystri-Ranga á Rangárvöllum var og er stórbú. Ketill hængur
Þorkelsson nam lönd á milli Þjórsár og Markarfljóts og deildi því síðar með
mörgum göfugum mönnum samkvæmt Landnámabók.
Ekið að
Hellu: Hella eins og Hvollsvöllur eru á „Njáluslóð”, mikið um merka sögustaði úr
Njálu í grenndinni og boðið er upp á ferðir á Njáluslóðir með
góðri leiðsögn frá Njálusetrinu.
Laugardælakirkja:
Bobby Fischer fyrverandi heimsmeistari í skák og íslenskur
ríkisborgari er jarðsettur í kirkjugarði Laugdælakirkju 2008.
Selfoss:
er landnámsjörð Þóris Hersis Ásasonar.
Selfosskaupstaður við Ölfusá, sunnan Igólfsfjalls.
Arnarbæli:
Einhver mesti höfðingi
Sturlungaaldar, Þorvarður Þórarinsson af Svínfellingaætt, fluttist
austan af landi að Arnarbæli 1289. Hann bjó þar til dauðadags í 7 ár.
Margir álíta, að hann hafi notað þennan tíma til að rita Njálssögu.
Kaldaðarnes: er og var stórbýli austan Ölfusár í
Flóa.
Ein elzta heimild um staðinn er ferjumáldagi Kaldaðarness frá
aldamótunum 1200. Þar er
kveðið á um einkarétt Kaldaðarness til ferjuflutninga yfir ána og
tvær ferjur voru í rekstri. Önnur
var á heimajörðinni gegnt Arnarbæli og hin efri var í ferðum milli
Kotferju og Kirkjuferju. Haukdælir
áttu jörðina um tíma og Gissur Þorvaldsson bjó þar 1252 og á árunum
1257-58 eftir að hann fékk jarlsnafnbótina.
Reykir:
Fyrrum stórbýlið Reykir í Ölfusi er við rætur Reykjafjalls austan Varmár.
Sagt er, að Karli, þræll Ingólfs Arnarsonar, sem mælti hin fleygu orð:
„Til ills forum vér um góð héruð, er vér skulum byggja útnes þetta.
Hjalli:
er bær og kirkjustaður
í Ölfusi.
Þar bjó einhver vitrasti og lögfróðasti höfðingi landsins
á sínum tíma, Skafti Þóróddsson, lögsögumaður.
Kolviðahóll:
Kolviðarhóll undir Hellisskarði var vinsæll og nauðsynlegur gististaður
þeirra mörgu, sem fóru um Hellisheiði fyrrum. Einn fjölmargra kunningja á
Kolviðarhóli var Brennivínsdraugurinn. Hann var talinn afturganga eftir
danskan „assistent“ Sunchenbergverslunar í Reykjavík.
Söguslóðir uppsveita Árnessýslu:
Áshildarmýri
Skeiðum: Áshildarmýri er sögustaður og forn samkomustaður
neðarlega á Skeiðum. Ólafur tvennumbrúni nam Skeiðin skv.
Landnámu.
Þjórsárdalur:
Stöng er tengd örstuttri sögu um Gauk trandil, sem er
sagður hafa búið þar og fíflað bóndakonuna á Steinastöðum, systur fóstbróður
hans, Ásgríms Elliðagrímssonar.
Gaukshöfði
Þjórsárdal: Gaukur á stöng var talinn vera í hópi fræknustu
manna á sínum tíma. Ásgrímur Elliðagrímsson, fóstbróðir hans, er
sagður hafa verið banamaður hans og vegið hann á Gaukshöfða.
Hruni:
Hruni
er bær, kirkjustaður og prestssetur í Hrunamannahreppi. Kirkjan,
sem þar stendur var byggð árið 1865. Þorvaldur Gissurarson
(1155-1235), sonur Gissurar Hallssonar í Haukadal, bjó í Hruna
1182-1225. Hann var goðorðsmaður, kænn höfðingi og prestvígður.
Bræðratunga: Landnáma segir Eyfröð hinn gamla hafa numið landi
á milli Hvítár og Tungufljóts. Margir helztu höfðingjar landsins
allt frá þjóðveldisöld og fram eftir öldum komu þar við sögu.
Ásgrímur Elliðagrímsson, sem getið er í Njálssögu, bjó þar.
Haukadalskirkja: er í Skálholtsprestakalli
í Árnesprófastsdæmi. Á kirkjuhurðinni er skjöldur, sem var upphaflega reiðaskjöldur,
og á hann er festur hringur.
Um
þennan hring og rúst hjá kirkjugarðinum er til þjóðsaga.
Gullfoss Sigríður
Tómasdóttir: fæddist í Brattholti 1874 og bjó þar
til dauðadags. Bærinn var í alfaraleið þeirra, sem komu til að skoða
Gullfoss, þannig að stundum var gestkvæmt. Systrunum í Brattholti
þótti vænt um fossinn og voru oft leiðsögumenn gestanna. Þær gerðu
fyrsta göngustíginn við fossinn.
Þingvellir:
Á Þingvöllum við Öxará komu Íslendingar saman í fyrsta sinni árið
930. Upp frá því voru Þingvellir þingstaður þjóðarinnar allt til
ársins 1798 eða í 868 ár samfleytt.
Söguslóðir:
Suðurland
Ferðakort nat.is:
Suðurland
Áhugaverðir staðir Suðurland -
Gististaðir á Suðurlandi

Galdrar og galdrabrennur
Suðurlandi

 |