Færeyjar,
[Flag of the United Kingdom]
 In english

[Flag of the Faroe Islands]

 


FÆREYJAR


.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Færeyjar eru eyjaklasi milli Íslands og Shetlandseyja.  Þær eru hluti danska konungsríkisins, en íbúarnir hafa heimastjórn.  Byggðar eyjar eru 17 og auk þeirra eru margar smáeyjar og sker.  Heildarflatarmál þeirra allra er u.þ.b. 1396 km².  Stærstar eru Straumey, Austurey, Vogar, Suðurey, Sandey, Borðey og Svíney.  Höfuðborgin er Þórshöfn á Straumey.  Íbúafjöldinn 1. janúar 2006 var u.þ.b. 48.213, þar af 18.018 í Þórshöfn.

Eyjarnar ná yfir svæði, sem er 113 km langt frá suðri til norðurs og 75 km breitt frá vestri til austurs.  Strandlegja eyjanna er u.þ.b. 1100 km löng.  Fjarlægðir til nágrannalanda:  Til Íslands 450 km, Noregs 675 km, Shetlandseyja 300 km og Aberdeen 580 km.  Ferðatími með ferju frá Hanstholm í Danmörku u.þ.b. 37 klst. Með flugi frá Kaupmannahöfn/Billund u.þ.b. 2 klst.

Höfuðborgin Þórshöfn er á Straumey
Flugvöllurin er staðsettur á Vogar
 

AUSTUREY
STRAUMEY
NORÐUR - STRAUMEY
SUÐUR - STRAUMEY

NORÐUREYJAR
MYKINES - VOGAR
SANDEY - SKÚFEY
SUÐUREY
ÞÓRSHÖFN
SAGAN-
LOFTSLAG og DÝRALÍF
JARÐFRÆÐI
EFNAHAGSMÁL
RÆÐISMENN


TIL BAKA               Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir               HEIM