ferðaskrifstofan víkingaslóðir dónársigling utanlandsferðir hópferðir,

DÓNÁRSIGLING

16 DAGAR FRÁ PASSAU TIL SVARTAHAFS OG TIL BAKA

ENGIN FERÐ 2009.   FERÐ 2010 AUGLÝST SÍÐAR!

FERÐATILHÖGUN
 

Organized Tours

1. dagur.  Koma til Frankfurt og rútuferð til þriggja fljóta borgarinnar Passau (u.þ.b. 2 klst.).  MS Bellissima liggur við bryggjuna Passau/Lindau.  Áhöfnin býður okkur velkomin kl. 16:30 og svo verða landfestar leystar á tímabilinu 17:00 – 17:30.  Farþegum gefst tækifæri til að kynna sér fljótandi hótelið sitt fram að kvöldverði.

2. dagur.  Morgunverður og hádegisverður um borð.  Koma til Vínar, höfuðborgar Austurríkis, kl. 13:15.  Skipið leggst að bryggju við Wien/Nussdorf (gæti breytzt).  Klukkan 14:00 hefst þriggja tíma bæjarferð um þessa borg tónlistar og lífsgleði, sacher-tertunnar og heuriger-vínsins.  Meðal þekktra kennileita eru Stefánsdómkirkjan og konungshöllin Hofburg.  Aðalskoðunarstaðir borgarinnar eru á dagskránni.
Brottför frá Vín klukkan 19:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

3. dagur.  Morgunverður og hádegisverður um borð.  Koma til Búdapest, höfuðborgar Ungverjalands, kl. 12:00.  Skipið leggst að bryggju við Akademia Ponton (gæti breytzt).  Á leiðinni njóta farþegar undurfagurs landslags við Dónárhnéð og ógleymanlegrar siglingar inn í borgina.  Bæjarferðin kl. 14:00 – 18:00 nær yfir helztu skoðunarstaði á báðum bökkum Dónar og um kvöldið kviknar ljósahaf borgarinnar.
Brottför frá Búdapest kl. 23:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

4. dagur.  Morgunverður um borð.  Skipið leggst að bæjarbryggjunni (gæti breytzt).  Koma til Mohacs kl. 09:00 og þá er strax haldið í ferð til Kalocsa, þar sem gengið verður um bæinn.  Hann er kunnur fyrir ungverskan útsaum og papríkuræktun.  Þá verður haldið til Puszta, þar sem hestasýning í Solt er innifalin.  Farþegar fá með sér nestispakka frá skipinu.
Brottför frá Mohacs kl. 16:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

5. dagur.  Morgunverður um borð.  Koma til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, kl. 08:00.  Skipið leggst að bæjarbryggjunni (gæti breytzt).  Morguninn er frjáls.  Haldið verður í bæjarferð um þessa rúmlega 1000 ára borg kl. 14:00 og snúið til skips kl. 17:00.  Meðal staða, sem verða skoðaðir, eru Kalemegdan-kastali og þjóðminjasafnið og sebneska rétttrúnaðardómkirkjan.
Brottför frá Belgrad kl. 23:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

6. dagur.  Siglt um Járnhliðið.  Farþegar geta látið fara vel um sig á sólþilfari og notið fegurðar landslagsins í þessum 130 km langa dal Karpata- og Balkanfjalla, sem Dóná hefur grafið.  Þessi hluti leiðarinnar er einn hápunkta ferðarinnar.  Járnhliðið er girt þverhníptum fjöllum og er örugglega villtasta svæði árinnar.  Árdegis birtast meðal annars Trajan-taflan og höggmynd Dakerkonungsins Decebal.  Um hádegisbil er farið um skipaskurðinn Djerdap I í grennd við borgina Kladovo.  Seint síðdegis er komið að skipaskurðinum Djerdap II.
Kvölverður og gisting um borð.

7. dagur.  Giurgiu – Oltenita í Rúmeníu.  Morgunverður og koma til Giurgiu kl. 10:00.  Skipið leggst að Karpatabryggju (gæti breytzt).  Hádegisverður um borð.
Bæjarferð í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, hefst frá skipshlið kl. 13:30 og lýkur þar kl. 17:00.  Þar verða nokkrar stórkostlegar byggingar skoðaðar.  Meða þeirra er Lýðveldishöllin (Ceaucescu-tíminn), kirkja og höll patríarka rúmensku rétttrúnaðarkirkjunnar.  Breiðstræti borgarinnar eru fáum öðrum lík.  Skipið siglir á meðan til Oltenita, þar sem farið verður um borð og siglt áfram kl. 19:00.
Kvöldverður og gisting um borð.

8. dagur.  Morgunverður og hádegisverður um borð. Koma til Sulina – Tulcea í árósunum í Rúmeníu kl. 12:30.  Haldið til baka til Tulcea og komið þangað kl. 17:00.  Frjáls tími til brottfarar kl. 23:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

9. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Koma til Cernavoda um hádegisbil.  Skipið leggst að Karpatabryggju (gæti breytzt).  Frjáls tími til skoðunar í Cernavoda.  Brottför kl. 18:00.
Kvöldverður og gisting um borð.

10. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Koma til Rousse í Búlgaríu kl. 08:30.  Frjáls tími til skoðunar í stærstu hafnarborg landsins og jafnframt hinnar fimmtu stærstu.  Rousse er ekki einungis iðnaðar- og landamæraborg við Rúmeníu, heldur einnig menningarmistöð héraðsins.  Það er gaman að kíkja á súlnahof baráttumanna endurfæðingarinnar, kirkju heilagrar þrenningar og mannfræðisafnið áður en skipið heldur áfram síðdegis kl. 14:00.
Kvöldverður og gisting um borð.

11. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Siglt um Járnhliðið.  Kvöldverður og gisting um borð.

12. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Koma til Novi Sad í Serbíu kl. 14:00.  Skipið leggur að borgarbryggjunni (gæti breytzt).  Bæjarferð um Novi Sad frá kl. 14:00 – 17:30.  Miklar minjar um fyrri herraþjóðir, Austurríkismenn og Ungverja, í byggingarstíl.  Eitthvert stærsta virki Evrópu og kennileiti borgarinnar er Petrovaradin.
Brottför frá Novi Sad kl. 18:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

13. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Koma til Mohacs kl. 06:00 og brottför kl. 09:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

14. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Koma til Komarom kl. 08:00.  Ekki hægt að fara frá borði, því skipið dvelur aðeins til kl. 09:00 og heldur svo áfram til Bratislava.  Þangað kemur það kl. 16:00 og leggst að Huma-bryggju (gæti breytzt).
Þá verður haldið í tveggja tíma göngu um miðbæinn, fyrst um L’ucovít Stúr-torg (fyrrum Krýningartorg) til Þjóðleikhússins við Hviezdoslav-torg.  Áfram um breiðgötuna og fram hjá dómkirkju heilags Marteins í hinum sögulega kjarna borgarinnar, þar sem ungversku konungarnir voru krýndir.
Gömlu og sögufrægu stígarnir liggja um gamla bæinn, þar sem er fjöldi hallna frá 18. öld.  Þar er fyrsti háskóli borgarinnar, Academia Istropolitana og Mikaelshliðið frá 14. öld.  Við aðaltorgið eru m.a. gamla ráðhúsið, Maximilian-brunnurinn (16. öld), hallir, hús í júgendstíl, fjöldi veitingastaða og hið sögufræga Mayer-bakarí.  Þaðan liggja þröngar götur í átt að Dóná, framhá óperunni, Ganymedes-brunninum og Redouten-byggingunni áður en komið er aftur að skipinu.
Farþegar, sem eiga erfitt með gang, geta ekið um í skemmtilest gegn fimm evru greiðslu.  Þessi lest ekur til hallarinnar með leiðsögumanni.  Þar gefst kostur á stuttum göngutúr.  Lestin kemst ekki inn í miðbæinn, þar sem aðeins gönguskoðun er möguleg.
Brottför frá Bratislava kl. 20:00.  Kvöldverður og gisting um borð.

15. dagur.  Morgun- og hádegisverður um borð.  Koma til Dürnstein kl. 09:00.  Skipið leggst að bryggjunni Dónárstöð 21 (gæti breytzt).  Rútuferð til Melk, þar sem klaustrið er skoðað með leiðsögu kl. 10:05.  Leiðsaga á norsku er í boði.
Benediktsklaustrið í Melk er aðalkennileiti Wachau og er á  heimsminjaskrá UNESCO.  Gríðarstórar byggingar klaustursins eru hliðið að Wachau.  Skipið siglir á meðan til Melk og eftir velheppnaða skoðunarferð stefnir skipið á Passau kl. 13:00.  Sérstakur kveðjukvöldverður í boði skipstjórans og gisting um borð.

16. dagur.  Morgunverður um borð.  Brottför með rútu frá skipi til flugvallarins í Frankfurt kl. 09:00.  Þar lýkur Dónárævintýrinu, en þegar heim kemur, er rútuferð til Reykjavíkur innifalin.

Verð á mann:
Gisting í tveggja manna káetu á aðalþilfari ikr.
392.672.-
Gisting í tveggja manna káetu á efraþilfari ikr.
419.072.-
Gisting í einsmanns káetu á aðalþilfari ikr.
510.844.-.
Verð miðast við evrugengi kr. 120.-.

Innifalið í ferðinni:
Flug og flugvallarskattar, Keflavík- Frankfurt-Keflavík.
Akstur frá flugvelli til Passau að skipi og til baka til Frankfurt
Fimmtán nátta ferð með MS Bellissima í reyklausum tveggja manna káetum í samræmi við bókun.
Fullt fæði, morgunverðarhlaðborð, hádegis- og kvöldmatur, sem hefst með kvöldverði og fordrykk fyrsta kvöldið um borð og endar með morgunverði síðasta daginn. 
Galakvöldverður eitt kvöldið.
Tónlist í setustofu á hverjum degi .
Hafnagjöld.
Leiðsögumaður - leiðsaga á íslenzku.
Læknir um borð í skípunu.
Skoðunarferðir: Bæjarferð í Wien, Bæjarferð í Búdapest, Gengið um Mohacs, Bæjarferð um Belgrad.
Bæjarferð í Búkarest, Bæjarferð um Novi Sad, Gengið um miðbærinn Bratislava, Rútuferð til Melk.
Íslenzk fararstjórn
Rútuferðir til og frá Keflavíkurvelli fyrir brottflug og eftir heimkomu innifaldar.

Nauðsynlegt að vita:
Skipuleggjendur ferðar áskilja sér rétt til breytinga dagskrár og lendingarstaða verði það nauðsynlegt.
Í heilsdagsferðum fá farþegar nestispakka með sér frá skipinu.
Læknisþjónusta um borð er veitt gegn gjaldi.
Drykkir og þjórfé um borð eru ekki innifalin í verði ferðar.
Farþegar verða að hafa með sér gilt vegabréf.
Farþegar verða að fylla út eyðublöð með upplýsingum um nafn, klefanúmer, kyn, fæðingardag og ár, fæðingarstað, þjóðerni, vegabréfsnúmer, gildistíma vegabréfs, útgáfustað og dagsetningu.
Víkingaslóðir áskilja sér rétt til breytinga verðs í samræmi við gengi.

 


Ferðaheimur

 
Víkingaslóðir ehf., Fannafold 165, 112 Reykjavík.  Netfang:  vikingaslodir@islandia.is - www.vikingaslodir.is - Um okkur
TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- Um okkur - Heimildir          HEIM