víkingaslóðir ferðaskrifstofa ferðir um allan heim,

Heimasíða

Cgi4Free


VÍKINGASLÓÐIR
ALHLIÐA FERÐASKRIFSTOFA HEIMA OG HEIMAN

.

.


Ferðaheimur

Ferðaskrifstofan Víkingaslóðir ehf. var stofnuð 1994.  Stofnendur voru Guðmundur Finnbogason og Roswitha Kreye, konan hans.  Þau eiga bæði áratuga langan og farsælan feril í ferðaþjónustu að baki.  Einkum hafa þau lagt áherzlu á móttöku erlendra ferðamanna og hafa skilað þúsundum ánægðra farþega eftir velheppnaðar ferðir um Ísland.

Roswitha er þýzk að uppruna og hefur starfað sem leiðsögumaður og bílstjóri í áratugi með frábærum árangri.  Guðmundur starfaði aðallega sem leigubílstjóri en varð brátt að leggja þann starfa á hilluna, því fyrirtækið óx svo ört og dafnaði, að hann varð að gefa sig óskiptan að því.  Reksturinn hlóð áfram utan á sig, svo að öll fjölskyldan varð að leggja hönd á plóginn auk annars starfsfólks.  Dóttirin Bryndís er grafískur hönnuður, búsett í Noregi.  Hún hefur aðstoðað við alla bæklingagerð fyrirtækisins.  Sigrún er góða sálin á skrifstofu Víkingaslóða.

Ferðaframboðið innanlands fyrir erlenda ferðamenn hefur verið í sífelldri endurskoðun og æ fleiri njóta góðrar þjónustu fjölskyldunnar og sérvalinna hótela um land allt.

Útrás Víkingaslóða hófst ekki fyrr en árið 2008 með Rínarsiglingu frá Amsterdam til Basel í Sviss og þaðan í tveggja daga rútuferð til Frankfurt am Main.  Undirtektir voru og eru enn þá frábærar.  Tvær slíkar ferðir voru farnar á fyrsta ári.  Aðrar tvær Rínarsiglingar og sigling um Dóná voru undirbúinar og auglýstar fyrir árið 2009 (sjá heimasíðu).

Víkingaslóðir ehf., Fannafold 165, 112 Reykjavík, sími 567-2288, fax 567-2280 og netfang vikingaslodir@islandia.is.


Víkingaslóðir ehf., Fannafold 165, 112 Reykjavík.  Netfang:  vikingaslodir@islandia.is - www.vikingaslodir.is - Um okkur
TIL BAKA          Nat.is - Pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- Um okkur - Heimildir          HEIM