MS
Bellissima,
sem siglir undir hollenzkum fána og var byggt árið 2004, skartar
fjórum hótelstjörnum.
Það er
111 m langt, 11 m breitt og hýsir allt að 134 farþega. Um borð er
setustofa með bar, verzlun og mjög fallegur og reyklaus veitingasalur
á efra þilfari. Þaðan liggja nokkrar tröppur og stóllyfta fyrir
fatlaða upp á sólþilfar með nuddpotti.
Allar 67 káeturnar bjóða útsýni frá aðal- og efra þilfari. Þær eru
þægilega innréttaðar með sturtu og salerni, hárþurrku, litasjónvarpi,
öryggishólfi (gegn gjaldi), skipssíma, stillanlegri loftræstingu og
tveimur rúmum, sem er breytt í sófa á daginn. Káeturnar eru allar
reyklausar og u.þ.b. 12 m2, nema svítan, sem er 24 m2.
Káetur á efra þilfari hafa allar franskar svalir og opnanlega
útsýnisglugga.
Gjaldmiðilar um borð eru evra, master- og vísakort.
|