|
Ásbyrgi er
stórkostleg náttúrusmíð með allt að 100 m háum hamraþiljum, sem hækka eftir
því, sem innar kemur í gljúfrið. Innst í Byrginu er Botnstjörn með mikilli
grózku allt um kring. Ásbyrgi er 3,5 km langt og um 1,1 km breitt. Í miðju
þess er standberg, Eyjan, sem er allt að 250 m breið. Byrgið er skógi vaxið.
Þar er einkum birki og víðir auk reynis og nokkur þúsund barrtré voru
gróðursett þar og dafna vel. Mikið er um fýlavarp í þvernhíptum
hamraveggjunum.
Marínó
Eggertsson, húsasmíðameistari, Ekrugata 6, 670 Kópasker. 465-2145,
852-2145, 892-2145 |