|
Seyðisfjörður fékk
kaupstaðarréttindi árið 1895. Hann er og var mikill síldarbær en
atvinnulífið nú tengist mest útgerð og fiskvinnslu. SR mjöl rekur eina
stærstu fiskimjölverksmiðju landsins á staðnum. Margir Norðmenn fluttu til
Seyðisfjarðar á síðari hluta 19. aldar og eru þar mörg falleg timburhús, sem
byggð voru um aldamótin 1900. Húsin, sem eru af
norsk/svissneskri ætt, eru hvað bezt varðveitta
svipmót aldamótanna í kaupstað hérlendis og laða til sín fjölda ferðamanna
ár hvert.
|