|
Golfklúbbur Djúpavogs var stofnaður haustið 1991. Þá hófst
hönnun golfvallar að Hamri í Hamarsfirði, u.þ.b.
10 km vestan Djúpavogs. Unnið hefur verið að
uppbyggingu vallarins frá árinu 1993.
Árið 1998 var útbúið æfingasvæði í samvinnu við U.M.F. Neista við
íþróttavöllinn í bænum. Árið 1999 var æfingaaðstaðan tekin í notkun.
Árið 2003 var tekinn í notkun nýr golfskáli og var hann fullbúinn um vorið
2004. Auk Golfskálans var á árinu 2003 tekið í notkunn glæsilegt æfingasvæði
við golfvöllinn. (heimild: vefur GKD). |