|
Golfklúbburinn
Hamar var
stofnaður
19. júní 1989. Stofnfélagar voru 42.
Dalvík er
kaupstaður í mynni Svarfaðardals. Aðalatvinnuvegirnir
eru útgerð, fiskvinnsla, iðnaður og verslun, en
þjónusta við ferðamenn eykst sífellt. Skíðalönd eru við Dalvík og góð
aðstaða er til skíðaiðkana í Böggvistaðfjalli. Hvalaskoðun, sjóstangaveiði
og grillferðir á sjó eru í boði sem og önnur fjölbreytt afþreying.
Áætlunarferðir eru á milli Árskógssands og Hríseyjar og frá Dalvík til
Grímseyjar. Minja- og náttúrugripasafn er á Dalvík og eru þar tvær stofur
helgaðar frægustu Dalvíkingunum,
þeim Dr. Kristjáni Eldjárn, fyrrverandi forseta Íslands og Jóhanni
Péturssyni - Jóhanni risa - en hann var með hæstu mönnum í heimi á sínum
tíma. |