|
Golfklúbburinn Hvammur var stofnaður 26.
nóvember 2003. Arið 2004 var tekinn í notkun 6 holu
völlur sem bíður vallarmats. Einnig
var tekið í notkun stórt æfingasvæði. Búið er að hanna 9 holur í heildina,
en gerð þeirra verður lokið á næstu 4-6 árum. Klúbburinn er aðili að GSÍ og
HSÞ.
Grenivík er kauptún í Grýtubakkahreppi austan
Eyjafjarðar og norðan Dalsmynnis. Samkvæmt Landnámu nam maður að nafni
Þormóður land á þessum slóðum. Kaldbakur er á aðra hönd en Þengilhöfði á
hina og láglendið Höfðahverfi frá víkinni suður að Fnjóská er þéttbýlt og
búsældarlegt. Ofan kauptúnsins er hólaþyrping gamalla
ísaldarruðninga. |