|
Höfn er eini bærinn
á landinu, sem er í skipgengum árósi. Þar byggist lífið á fiski, verzlun og
ferðaþjónustu. Hornafjarðarbær er á nesi milli Hornafjarðar og Skarðsfjarðar
ásamt nágrannabyggðalögum eftir sameiningu þriggja sveitafélaga. Bærinn
hlaut kaupstaðaréttindi árið 1988 en byggð hófst um einni öld áður,þegar
Otto Tuliníus flutti verzlun sína frá Papósi til
Hornafjarðar. |