|
Golfiðkun á Íslandi er talin hefjast árið
1934 er Golfklúbbur Reykjavíkur var stofnaður en Golfklúbbur Akureyrar var
stofnaður ári síðar. Heimildir eru þó fyrir að golf í einhverri mynd hafi
verið stundað í S. - Þingeyjarsýslu löngu áður. Árið 1912 var heimilisfólk á
Halldórsstöðum í Laxárdal við heyskap er það rak augun í litlar hvítar kúlur
sem komu í ljána og voru menn að vonum mjög undrandi þar til að einhver
mundi eftir því að sumarið áður hafði Englendingur að nafni Forder verið á
þessum slóðum og hafði sá haft með sér golfkylfur og einhver annarleg tæki
sem hann barði með kúlur á bökkum Laxár. Ekki eru til eldri heimildir um
golf á Íslandi.
Golfklúbbur Húsavíkur var formlega stofnaður þann 26. júní 1967.
Sumarið 1971
var tekinn í notkun 9 holu völlur á þessu svæði
Þorvaldsstaða.
Árið 1977 var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum golfskála og unnið að
fullnaðarfrágangi hans næstu árin. Á árunum 1982-83 var reist tækjageymsla
og samhliða því að vatnsleiðsla var lögð í golfskálann var vatnsveita lögð
að öllum flötum vallarins en Katlavöllur mun hafa verið einn af fyrstu
golfvöllum landsins með slíkt vökvunarkerfi.
Á síðasta áratug hefur markvisst verið unnið að endurbótum á golfvellinum án
þess þó að skipulagi hans hafi verið breytt. Keyptar hafa verið fullkomnar
vélar sem hafa gjörbreytt ástandi brauta og flata. Golfskáli var stækkaður
fyrir nokkrum árum og sumarið 2000 var tekin í notkun ný geymsluaðstaða
fyrir golfáhöld félaga auk þess sem gerð hefur verið ný og glæsileg
æfingaflöt við 1. teig. Margoft hefur þeirri hugmynd skotið upp kollinum að
stækka völlinn í 18 holur en hingað til hefur niðurstaðan verið að einbeita
sér að því að gera núverandi völl sem bestan úr garði enda félagar fáir á
mælikvarða golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu.
(Heimild: Vefsetur GKH). |