|
Golfklúbbur Suðurnesja var stofnaður 4. mars 1964. Land undir
völlinn er Leirujarðirnar
Stórhólmur og Hrúðunes og nokkrar
kotjarðir. Hann var kallaður
Hólmsvöllur og sú nafngift á rætur að rekja til hólma nokkurs rétt utan
strandarinnar. Fyrstu árin miðuðust framkvæmdir við að rífa grjótgarða,
grjóthreinsa mela og fullrækta svæðið auk þess að koma yfir sig þaki, en
fyrsti golfskálinn, 80 fermetra járnbraggi, var fenginn að láni hjá
Sölunefnd varnarliðseigna á öðru starfsári klúbbsins.
Átján holu völlur var vígður 6. júlí 1986
og nýtt og glæsilegt klúbbhús var tekið í notkun.
Síðan þá hefur risið ný vélageymsla, skýli fyrir æfingaaðstöðu og kaffiskáli
við 10. teig.
Í Leirunni er einnig 9 holu æfingavöllur, nefndur
Jóelinn, þar sem margir kylfingar
hafa byrjað ferilinn. Í
salarkynnum hússins er golfverzlun og
veitingarekstur. Glæst útsýni er með allri strandlengjunni frá norðri
til suðurs og fuglahljóðin í Bergvíkinni taka undir þær stórbrotnu aðstæður vallarins, sem öldurót hafsins mótar á
hverju ári. (heimild: Vefsetur GKS). |