|
Golfklúbburinn Kjölur var stofnaður 7. desember 1980.
Fyrsta sumarið í sögu klúbbsins var fengið að
láni land í Leirvogstungu. Í maí 1983 var
undirritaður samningur milli Mosfellshrepps og golfklúbbsins um leigu á
landi því, sem golfvöllurinn er nú á og var
leigutíminn 20 ár. Vallargerð lauk 1886.
Hlíðavöllur var formlega tekinn í notkun í júlí 1986 og var þá 5678 metrar
að lengd miðað við 18 holur. Allar flatir hafa
nú verið endurnýjaðar og miklar lagfæringar gerðar á 5.og 6. braut vegna
byggðar við hliðina á golfvellinum. Er nú hugur
í félögum að stækka í 18 holur og byggja nýjan skála og fer nú vonandi
eitthvað að gerast í þeim málum. (heimild: Vefsetur
GKK).
|