|
Mývatn er fjórða
stærsta stöðuvatn landsins. Í því er góð silungsveiði, sem
bændur við vatnið stunda allt árið. Mývatn er heimsfrægt fyrir
fjölbreytt náttúrufar og fuglalíf en talið er að þar megi finna
varpstöðvar fleiri andategunda en á nokkrum
öðrum stað á jörðinni. Vatnið sjálft og svæðið umhverfis það er þekkt fyrir
einstaka náttúrufegurð og sérstakar andstæður í landslagi. Jarðmyndanir eru mjög fjölbreytilegar
og víðast hiti í jörðu, enda
er svæðið innan hins virka eldgosabeltis og
eru eldgos tíð, hið síðasta árið 1984. Þéttbýliskjarnar
eru við Reykjahlíð og Skútustaði
og þar er góð og fjölbreytt þjónusta við ferðamenn,
hótel og önnur gistiaðstaða og velskipulögð og
notaleg tjaldsvæði.
Kísilgúrvinnsla
var í nágrenni. Reykjahlíðar og gufuaflsvirkjanir
eru við
Kröflu í og í
Bjarnarflagi. |