|
Seltjarnarneskaupstaður stendur vestast á samnefndu nesi. Útifyrir
nesinu er Grótta með sinn fræga Gróttuvita en þar er fjölbreytt fuglalíf og
landið friðlýst. Mjög er áhugavert að stunda gönguferðir um Seltjarnarnes og
þá sérstaklega um fjörur og í kringum Bakkatjörn en þar, sem víðast á
nesinu, er einnig fjölbreytt fuglalíf.
Nesvöllurinn er yzt á nesinu, að mestu umgirtur Faxaflóa og
á honum stendur einn stefnuvita flugvallarins. (Kort af vefsíðu GKN).
 |