|
Siglufjörður var
fyrrum kallaður síldarhöfuðstaður heimsbyggðarinnar, og það ekki að
ástæðulausu. Núna er þar mikil útgerð og fiskvinnsla og ein stærsta
mjölverksmiðja landsins.
Þar er síldarminjasafn og síldarhátíðir eru haldnar þar á hverju sumri.
Eftir að síldin hvarf í þrjá áratugi, byggðu
Siglfirðingar upp öflug fiskvinnslufyrirtæki og útgerð og er atvinnuástand
þar gott, en mikil niðursveifla varð þegar síldin hvarf. Ferðaþjónusta
er fjölbreytt og áhugavert er að skoða nágrenni Siglufjarðar, s.s.
Héðinsfjörður og Siglunes.
|