|
Hágerðisvöllur er
aðeins í þriggja
mínútna akstursfjarlægð frá Kántrýbæ og Söluskála OLÍS
á Skagaströnd.
Golfklúbbur Vindhælishrepps hins forna var
svo stofnaður formlega 27. nóv. 1985.
Upphaflegt nafn golfklúbbsins, sem hér á sér sögulegar rætur, virtist ekki
falla öllum í geð. Það var því á næsta aðalfundi, í maí 1986, að nafninu var
breytt í Golfklúbbur Skagastrandar.
Sumarið 1986 eignaðist klúbburinn fyrsta landsvæðið og var þar gerður 6 holu
völlur. Árið 1990 losnaði landið, sem klúbburinn hafði
lengi haft augastað á og það var keypt. Golfskáli kom árið 1991
og gamalli hlöðu var breytt í áhaldageymslu árið 1994.
Síðan 1991 hafa hlutirnir gerst hratt. Uppbygging vallarins hefur gengið
vel, m.a með mikill sjálfboðavinnu og góðum stuðningi sveitarfélagsins og
fyrirtækja. Landsvæðið er allt á ræktuðu túni og því á
margan hátt heppilegt til vallargerðar. Hágerðisvöllur er fjölbreyttur,
klettahæðir og mishæðótt landslag skapa alls konar brautir og þar með
skemmtilega vallarmynd. |