|
Hólmavík er kauptún við
Steingrímsfjörð en þar er verzlunar- og
þjónustumiðstöð fyrir Hornstrandir og hefur verið frá
síðari hluta 19. aldar. Elzta hús staðarins hefur
verið endurbyggt og er þar nú veitingarstaðurinn Café Riis, en þar eru
skemmtilegar myndir af Hólmavík, sem gefa fólki kost á að kynnast sögu
Strandamanna. Góð silungsveiði er í nærliggjandi
vötnum og ám og boðið er upp á ferðir til Grímseyjar. Fjöldamargt fleira
er hægt að gera sér til afþreyingar í Hólmavík og nágrenni og gestrisni
heimamanna viðbrugðið.
Aðalhvatamaður að stofnun
Golfklúbbs Hólmavíkur var Sigfús Ólafsson læknir (sem lést
langt fyrir aldur fram í febrúar 2003) ásamt oðrum áhugamönnum Völlurinn
er 9 holur og er nú unnið að endurskipulagningu með leiðsögn frá Edwin
Rögnvaldssyni golfvallarhönnuði. |