|
Jörðin Kiðjaberg
er fornfrægt óðalsbýli og var um langt skeið sýslumannssetur Árnesinga,
en árið 1989 keypti Meistarafélag húsasmiða í Reykjavík jörðina til
orlofsaðstöðu fyrir félagsmenn.
Kiðjaberg er um 500 ha. og afmarkast af Hvítá og Hestvatni annars vegar
og jörðunum Arnarbæli, Gelti og Hesti hins vegar. Á jörðinni stendur
gamla sýslumannshúsið byggt 1869, en það er elsta timburhús í sveit á
Suðurlandi.
Árið 1990 var ráðist í að endurbyggja húsið í upprunalegri mynd, en það
var orðið býsna hrörlegt, enda 120 ára.
Endurbygging þess tókst mjög vel og nú stendur það gestum til sýnis sem
verðugur minnisvarði um höfðingjasetur 19. aldar.
Við eigendaskiptin var landið tekið til skipulags og gert ráð fyrir
allt að 150 sumarhúsum. Ríkulega er séð fyrir opnum svæðum til leikja
og skógræktar og girt var af allstórt svæði til hrossageymslu. Ýmissa
kosta er völ til afþreyingar, m.a. laxveiði í Hvítá, silungsveiði og
siglingar á Hestvatni og ágæt sundlaug er að Hraunborgum í næsta
nágrenni. Þá var útbúið tjaldsvæði við Hestvatn til afnota fyrir
kylfinga og gesti Kiðjabergs.
Strax árið 1989 var hafist handa við gerð golfvallar og var Hannes
Þorsteinsson golfvallahönnuður fenginn til að teikna hann.
Gert er ráð fyrir 18 holu velli og eru 9 holur nú fullgerðar. Liggja
þær í einkar fjölbreyttu landslagi á bökkum Hvítár. Völlurinn er par
70, 5448 m af gulum teigum, en 4784 m af rauðum. Allgott æfingasvæði
er við völlinn sem og fjögurra holu par 3 völlur opinn öllum
gjaldfrjálst til æfinga. Við völlinn er 120 fm. golfskáli með
snyrtingum og veitingasölu. |