|
Golfklúbbur
Hellu, GHR, var stofnaður 1952. Fyrsta vallaraðstaða klúbbsins var á
Gaddastaðaflötum við Ytri-Rangá hjá Hellu og var golf stundað þar
nokkuð reglubundið á 9 holu golfvelli frá 1952-58, en þá varð aðstaðan
að víkja fyrir hestamannafélaginu.
Starfsemi klúbbsins lagðist því sem næst niður í kringum 1960 vegna
vallarleysis, en uppúr 1970 fékkst land fyrir starfsemina að nýju að
Strönd, Rangárvöllum. |