|
Upphaf byggðar í
Hveragerði má rekja til ársins 1902, þegar ullarkembistöð var reist við
Reykjafoss. Hveragerði er byggt á jarðhitasvæði og þess vegna hefur
garðyrkja og gróðurhúsarækt verið uppistaða atvinnulífs þar. Margar
glæsilegar gróðrastöðvar eru í bænum og eru ræktaðar þar hitabeltisjurtir og
fjölbreytt úrval ávaxta. Eftirsóknarvert er að koma í Hveragerði og fá sér
tómata, gúrkur og alls konar grænmeti. |