|
Öndverðarnes er orlofsjörð Múrarafélags Reykjavíkur og Múrarameistarafélags
Reykjavíkur. Golfklúbbur Öndverðarness er stofnaður 1974 af nokkrum félögum
þessara samtaka og þeirra nánustu. Félögum hefur fjölgað jafnt og þétt og
eru nú um 150. Stöðugt hefur verið unnið að endurbótum á golfvelli og
annarri aðstöðu, m.a. var nýr golfskáli tekinn í notkun 1994. Golfklúbburinn
er aðili að GSÍ frá 1998. Vallarmet á Sigurður Pétursson, GR 69 högg sett
1997. |