|
Selfoss er landnámsjörð Þóris Hersis Ásasonar.
Selfosskaupstaður við Ölfusá, sunnan Igólfsfjalls, fór að byggjast
árið 1891, þegar hengibrú var lögð yfir ána en
hún hrundi árið 1944. Þá var
gerð ný brú, sem hefur staðið síðan. Byggðin
styrktist mjög upp úr 1930, þegar Kaupfélag Árnesinga
og Mjólkurbú Flóamanna hófu starfsemi sína. Selfoss, sem nefndur hefur
verið höfuðstaður Suðurlands, fékk kaupstaðarréttindi árið 1978.
|