|
Þorlákshöfn er kauptún á Hafnarnesi, vestan
ósa Ölfusár. Þar er eina góða höfnin á Suðurlandi frá Grindavík að Höfn í
Hornafirði. Laxdælasaga segir frá komu Auðar djúpúðgu til landsins, þegar
skip hennar brotnaði á Vikrarskeiði og fé og menn björguðust. Þar er nú
Hafnarskeið og Hraunskeið vestan Ölfusárósa. Árið 1718 (5. nóv.)
strandaði danska herskipið Gautaborg á Hafnarskeiði og bændur björguðu 170
manns. Fyrsta hafnargerð hófst
1929. |