|
Ferðaþjónustan
í Úthlíð hefur rekið golfvöll síðan 1992 og golfklúbbur er starfandi í
tenglsum við hann. Völlurinn er ríflega
2500 m á gulum teigum og um 2200 m á rauðum.
Uppbygging hans hefur staðið yfir jafnt og þétt yfir
frá því árið 1992. Búið er að setja niður nokkrar sandgryfjur og byggja upp
teiga á brautum. Trjám er plantað á hverju sumri, svo ásýnd
vallarins mun breytast í framtíðinni.
Völlurinn er opnaður í lok maí og verður opinn fram á haust eins lengi og
veður leyfir. Vallargjöld eru greidd í Hlíðalaug og þar er einnig hægt að
kaupa einföldustu golfvörur og leigja golfsett.
Klúbburinn notar veitingastaðinn Réttina sem klúbbhús, þar er hægt að kaupa
mat og aðrar veitingar.
 |