|
Golfklúbburinn í Vík var stofnaður 1992. Árið 1993 lét stjórn klúbbsins
hanna níu holu golfvöll fyrir klúbbinn á landssvæði í
eigu Mýrdalshrepps. Völlurinn liggur fast að tjaldsvæði Mýrdælinga í
göngufæri frá þorpinu, girtur hamrabelti með útsýni til
Hjörleifshöfða til austurs með sjóinn, Reynisdranga og Reynisfjall í suðri.
Sex af níu brautum vallarins eru byggðar í sandbrekku undir Víkurhömrum,
ofan gamla þjóðvegarins austur frá Vík, sem sker
völlinn eftir endilöngu. Reiknað er með að þessi gamla þjóðleið sé reiðvegur
og göngustígur. Heildarlengd vallarins verður um 2.720 metrar þegar hann
hefur allur verið tekinn í notkun. Um er að ræða 3 brautir par 3, 4 brautir
par 4 og 2 brautir par 5. (heimild: vefur GKV). |