|
Bíldudalur er kauptún utarlega við
Bíldudalsvog, sem gengur inn úr Arnarfirði. Verslun hófst snemma á
Bíldudal og settu margir merkir athafnamenn merki sitt á staðinn og má
sjá þar mörg hús frá 19. öld, sem tengdust vezslun
og fiskvinnslu, og er hvorttveggja stundað þar enn í dag. Ýmis afþreying
stendur til boða, t.d. golf o.fl. Þar er eitt af elztu húsum landsins,
pakkhús frá því fyrir miðja 18. öld. |