|
Syðridalsvöllur
var formlega tekinn í notkun 6. júlí 2002. Þá hafði vellinum verið
breytt úr hefðbundnum 9 holu golfvelli yfir í 9 holu golfvöll með
tvöföldu teigasetti, þ.e. 18 teiga völl sem viðurkenndur er sem 18 holu
goflvöllur hjá Golfsambandi Íslands.
Bolungarvík er
kaupstaður við utanvert Ísafjarðardjúp og tengist Ísafirði
með Óshlíðarvegi, sem þótti mikil framkvæmd um miðja öldina. Útræði
hefur verið stundað þar allt frá landnámsöld og er
Bolungarvík ein af merkustu verstöðvum landsins. |