|
Golfklúbburinn Mostri var
stofnaður haustið 1984. Víkurvöllur er sunnan Vatnsáss, þar sem
Hótel Stykkishólmur trónir og þar er einnig tjaldstæðið. Klúbbúsið
stendur, þar sem sjá má yfir allt vallarscæðið. Stutt er í alla
afþreyingu, sundlaugin í tveggja göngumínútna fjarlægð og stutt niður í
miðbæ.
Stykkishólmur
er oft kallaður höfuðstaður Snæfellsness. Bærinn stendur á
innanverðu Snæfellsnesi, yzt á Þórsnesi. Byggðin
stendur á klettaborgum með flóasundum á milli.
Þarna eru þrír aðalklettahryggir, sem liggja frá norðaustri til
suðvesturs, Ytrihöfði, Höfði og Steinólfshóll. |