|
Vatnsleysuströnd
er 15 km langt og mjótt byggðarlag með ströndinni milli Hvassahrauns og
Kvíguvogastapa. Líkast til er nafnið dregið af danska orðinu „vandløse”,
sem þýðir lauslega lindasvæði, en mikið ferskvatn kemur upp meðfram
ströndinni úr beljandi móðum undir hrauninu, þótt ekkert slíkt sé að
hafa inn til landsins.
Vogar á Vatnsleysuströnd er kauptún, sem
varð til við breytingar á útgerðarháttum, þegar
vélbátaútgerð gekk í garð með stærri skipum, sem kröfðust góðs lægis
eins og er við Voga. Um aldamótin voru tæplega 800 íbúar í Vogum,
fleiri en í Keflavík og Grindavík samanlagt. |