|
Haukadalsvöllur
við Geysi er eins og þeir sem hafa spilað hann vita glæsilegur völlur
í einstakri náttúrufegurð. Tvær ár setja svip sinn á völlinn, birkið
og mosinn umlykja brautir á alla vegu. Einstakt útsýni er yfir
hverasvæðið þar sem hverinn Strokkur gýs reglulega með tilheyrandi
gufustrók og við og við skvettir gamli Geysir úr sér.
Völlurinn er krefjandi og skemmtilegur. Tilvalið er fyrir
fyritæki og hópa að halda mót á vellinum. Að móti loknu er unnt
að slappa af í þægilegu klúbbhúsi þar sem unnt er að fá allar
veitingar.
Gistiheimilið Geysir sér um bókanir fyrir Haukadalsvöll en þar
er hægt að leigja golfsett ef það er ekki með í farteskinu. Á
gistiheimilunu er gisting fyrir allt að 22 sem
er áfast er klúbbhúsinu. Flatskjáir og
leðursófar auka á golfstemninguna milli hringja eða eftir. Ekki
spillir glæsilegt útsýni yfir hverasvæðið.
Sjá
Geysis
svæðið.

|