|
Á
hótelinu er 9 holu golfvöllur,
sundlaug, tveir heitir pottar, gufubað, tennisvellir, , snókerherbergi,
pílukast og margt fleira sér til afþreyingar.
Á hótelinu eru 85 tveggja manna herbergi búin öllum helstu þægindum.
Gestir hótelsins fá jafnframt aflátt á Gólfvöll Hveragerðis sem er í
næsta nágrenni við hótel Örk.
Upphaf byggðar í
Hveragerði má rekja til ársins 1902, þegar ullarkembistöð var reist við
Reykjafoss. Hveragerði er byggt á jarðhitasvæði og þess vegna hefur
garðyrkja og gróðurhúsarækt verið uppistaða atvinnulífs þar. Margar
glæsilegar gróðrastöðvar eru í bænum og eru ræktaðar þar
hitabeltisjurtir og fjölbreytt úrval ávaxta. Eftirsóknarvert er að koma
í Hveragerði og fá sér tómata, gúrkur og alls konar grænmeti. |