|
Gönguleiðir
á austurlandi Víknaslóðir 9,

Gönguleiðir
Ísland |
GÖNGULEIÐIR Á
AUSTURLANDI
VÍKNASLÓÐIR 9
BORGARFJÖRÐUR - LOÐMUNDARFJÖRÐUR

9. Borgarfjörður –
Loðmundarfjörður
5-6 klst.
Nokkuð erfið ganga um Kækjuskörð (772 m) um gróið land, mela og urðir. Við
götuna eru Kirkjusteinn og Kollur, þekktir úr álfasögum.
Lagt af stað frá Þverárbrú innst í Borgarfirði og gengið yfir brú á
Lambadalsá og áfram inn Kækjudal. Kollur er stór stakur steinn rétt við
götuna skammt innan brúarinnar en álfakirkjan er innarlega í dalnum, á
vinstri hönd skömmu áður en beygt er upp í skörðin. Efsta brekkan er
brött stórgrýtisbrekka. Í Kækjuskörðum er smá jökull eða snjóskafl. Í
dymmri þoku getur verið erfitt að sjá stikuna handan fannarinnar. Reynið
því að fara beina leið yfir fönnina eftir fyrri stikum.
Sunnan í skörðunum er gengið niður Orustukamb, skýra gönguleið um skriður,
urðir og slétta mela. Þegar kemur niður á Fitjar, sléttuna í Hraundalnum
er farið um göngubrú og inn á ágætan jeppaveg og honum er síðan fylgt
niður í Stakkahlíð.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!
. |
.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Ferðaheimur |