|

Gönguvegalengdin er samtals um 55 km.
Hér er henni skipt í þrjá þægilega
áfanga. Hún hefst í
Landmannalaugum og endar á
Rjúpnavöllum í Landsveit. Hún
er öll stikuð og skálar eru í Landmannalaugum,
Landmannahelli, Áfangagili og á
Rjúpnavöllum. Dagleiðirnar
eru svipaðar og á Laugaveginum.
Fyrsti áfanginn liggur frá
Landmannalaugum í
Landmannahelli, 16,5 km. Gengið er af stað í 590 metra hæð
yfir sjó í Landmannalaugum yfir Laugahraun,
líkt og við upphaf Laugavegargöngu. Við
Brennisteinsöldu skiptast leiðir. Þar
er farið til hægri út
Vondugilsaura og upp Uppgönguhrygg. Þaðan út í Dómadal.
Þar fyrir ofan er hæsti punktur leiðarinnar, 823
metrar. Við Dómadalsháls er farið fyrir Dómadalsleið og því
er hægt að tvískipta leiðinni, eftir úthaldi og getu hvers
og eins. Frá Dómdalshálsi er farið út með Lifrarfjallavatni
að vestan og inn fyrir Löðmundarvatn, gengið meðfram
Löðmundi og þaðan upp Hellisfjall og að skálum við
Landmannahelli. Göngutíminn er 5-7 klst.
Annar áfangi er úr Landmannahelli, (590 m hæð) í Áfangagil
og er um 17-18 km langur. Gengið er frá skálasvæðinu í
Landmannahelli út undir Herbjarnarfell og þaðan í átt að
Sauðleysum og út Lambaskarð. Þar er farið yfir
Lambafitjahraun, sem rann 1913. Þar þarf að vaða yfir
Helliskvíslina og er það eina áin á allri leiðinni,
tiltölulega auðveld yfirferðar. Við Valagjá handan
Helliskvíslar tekur við gamla Dyngjuleiðin og getur fólk
því tvískipt leiðinni. Frá Valagjá er farið milli Valahnúka
og Valafells, sem leið liggur í Áfangagil. Göngutími 5-7
klst.
Þriðji áfanginn er frá Áfangagili (um 260 m hæð) að
Rjúpnavöllum (um 150 m hæð) og er um 21. km. Í Áfangagili
eru nýjar réttir, þar sem árlega er réttað fé sem gengur á
Landmannaafrétt. Gengið er út með öldunni fram að gömlum
fjárbyrgjum í Sölvahrauni. Þaðan er gengið að hraunjaðri
Skólkvíahraunsins frá 1970. Síðan liggur leið með
Sauðfellsöldu að eystri upptökum Ytri-Rangár og meðfram
ánni. Þar sjást Fossabrekkur við Rangá mjög vel. Þaðan er
farið að kjafti Ófærugils, yfir brú og haldið svo áfram sem
leið liggur að Rjúpnavöllum. Þar er nýtt skálasvæði í Landi
Merkihvols, sem er efsta jörð í Landsveit.
Göngutíminn er 5-7 klst.
Fært er öllum bílum að Rjúpnavöllum, sem eru
rétt fyrir ofan Galtalækjarskóg. Hægt er að fara þangað
daglega með rútu og einnig í Landmannahelli og Landmannalaugar
með viðkomu á
Leirubakka. Nauðsynlegt er
að láta Kynnisferðir vita um farþega á
þessum stöðum og í hvora
áttina þeir ætla að fara.
SKÁLAR Á GÖNGULEIÐINNI LANDAMANNALAUGAR –
RJÚPNAVELLIR:
Landmannalaugar.
www.nat.is/fi_page_isl.htm
gps hnit N 63 59 V 19 03
Landmannahellir:
www.landmannahellir.htm
gps hnit N 64 03 V 19 14
Áfangagil: Sjá
wwww.afangagil.info.
gps hnit N 64 06 V 19 34
Rjúpnavellir: Sj
ru0Rjúpnavellir
gps hnit
N 64 02 V
19 50
|