|
Hiking in
iceland Holaskjol to Thorsmork,

Gaumlisti fyrir göngufólk

Gönguleiðir
á Íslandi

Mýrdalsjökull

Eyjafjallajökull

Torfajökull

Tindfjallajökull

Markarfljót

Mælifellssandur

Jökulgil

Annað á
Landmannaleið

Áhugaverðir staðir um allt land í
stafrófsröð
|
GÖNGULEIÐIN HÓLASKJÓL - ÞÓRSMÖRK
Beittu músinni á staðina á kortinu
til að fá ítarlegri upplýsingar um gönguleiðina.
Grænalínan sýnir gönguleiðina Hólaskjól í Þórsmörk eða Landmannalaugar.

Þessi fagra
gönguleið hálendiskyrrðar liggur í skjóli jökla og hárra fjalla með
gróðurflesjum.
Fyrstu áfanginn, 6-7 km, liggur á milli Hólaskjóls og Álftavatna. Gengið
er upp með Syðri-Ófæru hjá svonefndum Silfurfossi eða Litla-Gullfossi.
Þaðan liggur leiðin um gljúfur að gangnamannaskálanum við
Álftavötn, sem
Útivist lét endurbyggja. Þaðan er hægt að njóta hins fagra umhverfis í
kvöldgöngu.
Annar áfanginn, 20 km, liggur first meðfram Syðri-Ófæru hjá stórri
steinbrú við Þorsteinsgil og þar blasir dalverpið Álftavatnskrókur við.
Þaðan er haldið að mynni Ófærudals, þar sem fossar steypast niður í
Krókinn. Eldgjá liggur þvert á gönguleiðina við dalsendann og þar er
sveigt til vesturs meðfram hömrum girtum Svartahnjúksfjöllum norðanverðum
í Hólmsárbotna og að Strútslaug. Laugaháls og Torfajökull gnæfa þar yfir
í norðvesturátt, Svartahnjúksfjöll í austri og Strútur í suðri. Eftir bað
í Strútslaug er haldið áfram yfir Skófluklif eða um Krókagil og síðan
skamman spöl að Strútsskála.
Þriðji áfanginn, 18 km, liggur vestur yfir Veðurháls. Mýrdalsjökull er á
vinstri hönd og leiðin liggur um Mælifellssand hjá Hrútagili og
Skiptingaöldu. Þá kemur Slysaalda og Kaldaklofskvísl, sem verður að vaða
í lænum. Áfram er haldið gamla götu milli Einstigsfjalls og Sléttafells
að Hvanngilshnausum og að skálanum í Hvanngili.
Þarna skiptast leiðir. Annaðhvort er hægt að ganga til Þórsmerkur,
suðurhluta hins svonefnda
Laugavegar,
eða norður til Landmannalauga um norðurhluta þessarar leiðar.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!
.
|
![[Flag of the United Kingdom]](../images/england_flag.jpg)
In English

Buses-Flights
Ferries-Car rentals

Áætlun Þórsmörk

Áætlun Hólaskjól
og
Landmannalaugar

Gisting á hálendinu

Veður og færð

Ferðafélagið
Útivist
|