|
Auðveld ganga: x
Nokkuð krefjandi: xx
Frekar krefjandi: xxx
Mjög krefjandi: xxxx
1.
Ásgarður-Ásgarðsfjall x
Vegalegnd
um 1 km, hækkun um 100 m, göngutími alls um 1/2 klst.
Gengið frá
Ásgarði sem leið liggur á Ásgarðsfjall (929 m). Þaðan blasa við hæstu
tindar Kerlingarfjalla í suðri, Kjalvegur og Langjökull í vestri
og Hofsjökull í austri með Þjórsárverum þar fyrir
sunnan.
2.
Ásgarður-Hveradalaklif x
Vegalegnd
um 2,1 km (x2) , hækkun um 100 m, göngutími alls um 1 (x2) klst.
Gengið til
suðurs frá Ásgarði að hverum og jökulís. Öræfakyrrð og stórbrotin
náttúra Neðri-Hveradala blasa við af klifinu. Þaðan liggja margar
gönguleiðir.
3.
Hveradalaklif-Hveradalahnúkur x
Vegalegnd
um 0,8 km, hækkun um 150 m, göngutími alls um 1/2 klst.
Gengið austur
úr Hveradalaklifi á Hveradalahnúk. Farvegur Ásgarðsár frá
Hveradölum niður að Ásgarði sést hvergi betur með fallegum fossum
og flúðum en dýpst er gljúfrið yfir 100 m.
4.
Hveradalaklif-Mænir xxx
Vegalegnd
um 1 km, hækkun um 400 m, göngutími upp alls um 1 klst.
Úr
Hveradalaklifi er hægt að ganga á fjallið Mæni (1352 m) og sér vítt yfir
þegar upp er komið. Nær er litadýrð Hveradala og
hæstu tindar Kerlingarfjalla en fjær Kjalvegur og
fjöll og vötn vestan hans með Langjökul í baksýn.
5.
Hveradalaklif-Snorrahver-bílastæði Neðri Hveradala xx
Vegalegnd
um 1,4 km, lækkun um 80 m, göngutími alls um 1 klst.
Úr
Hveradalaklifi er örstutt niður að Snorrahver, miklum hver efst í
norðanverðu háhitasvæði Neðri-Hveradala. Frá
honum rennur heitur lækur, misvatnsmikill eftir
árstíma. Leiðin frá Snorrahver að bílastæði Neðri-Hveradala liggur þar
sem háhitasvæði og skriðjökull mætast.
6. Gil og gljúfur
neðan Hveradala x
Vegalegnd
um 5 km, göngutími alls um 11/2 klst.
Frá bílastæði
við Neðri-Hveradali er gengið eftir vegaslóðinni niður í Ásgarð. Út
frá henni er stutt að farvegi Ásgarðsár. Gengt er niður í dýpsta
hluta gljúfursins. Fossar í ánni sjást
sumir frá veginum, aðrir eru í nokkurra mínútna göngufjarlægð.
7.
Neðri-Hveradalahringur xx
Vegalegnd
um 3 km, göngutími alls um 1-2 klst.
Gengið frá
bílastæði við Neðri-Hveradali um öflugasta hluta háhitasvæðisins,
þar sem eldur og ís mætast. Ógleymanleg ganga
öllum sem hana þreyta. Ganga verður
með
gát um svæðið.
8. Efri-Hveradalahringur
xx
Vegalegnd
um 8 km, hækkun um 150 m, göngutími alls um 3-4 klst.
Gengið er frá
bílastæði við Neðri-Hveradali upp með Ásgarðsá að upptökum
hennar. Þaðan er gott útsýni til suðurs. Síðan er haldið til
norðurs og gengið á Kerlingarskyggni í miðjum
Hveradölum. Er útsýni þar tignarlegt.
9. Ásgarður-Kerling
x
Vegalegnd
um 5 km, göngutími alls um 4-5 klst.
Kerling er
25-30 m hár móbergsdrangur sem fjöllin draga nafn af. Liggja margar
leiðir að henni. Auðgengnast er frá Ásgarði til suðvesturs milli
Kerlingartinds og Skeljafells. Kerlingin kemur
skyndilega í ljós þegar slóðin beygir til austurs.
10.
Jökulhryggur-Fannborgarhlíðar x
Vegalegnd
um 2 km, göngutími alls um 1-2 klst.
Ekið er upp
að Kastala við Jökulhrygg. Þaðan er gengið suður vesturhlíð
Fannborgar. Haldið er sömu hæð og komið að höfða,
sem gengur vestur úr Fannborg og er kallaður Högg.
Er þar gott útsýni yfir Hveradali og fagurt. Inn af
Högginu er lítið dalverpi með volgum lækjum sem renna undan
fönnum.
11.
Jökulhryggur-Fannborg xxx
Vegalegnd
um 2 km, hækkun rúmir 400 m, göngutími upp um 1 klst.
Frá
Jökulhrygg liggur stígur upp skriður vesturhlíða Fannborgar (1448 m) til
suðurs. Útsýni yfir Neðri-Hveradali og Vestur-Kerlingarfjöll.
12.
Jökulhryggur-Snækollur xxxx
Vegalegnd
um 1,5 km, hækkun tæpir 500 m, göngutími alls rúmar 3 klst.
Lagt er upp
frá Jökulhrygg á Snækoll (1488 m). Þar er útsýni mest um landið og
sést til sjávar bæði til suðurs og norðurs í góðu skyggni. Meðan
vetrarsnjórinn lokar jökulsprungum er gengið upp
Fannborgarjökul og norðan Vesturgnípu,tindsins milli Snækolls og
Fannborgar. Gengið er upp Fannborg ef sprungur eru
opnar.
13.
Jökulhryggur-Loðmundur xxxx
Vegalegnd
um 8 km, hækkun rúmir 400 m, göngutími alls um 4 - 5 klst.
Lagt er upp
frá Jökulhrygg á Loðmund (1429 m) en leiðin er erfið uppgöngu og
útsýni mun minna en af Snækolli. Snarbrattur skafl í skarði
vestur af toppifjallsins hefur freistað ofurhuga úr hópi skíðamanna.
14. Fjallahringurinn
x
Vegalegnd
um 50 km, göngutími vanra göngumanna um 15-18 klst.
Gengið er
réttsælis frá Ásgarði norðan við Snækoll og Loðmund og svo til suðurs
fram hjá Kisufelli og yfir ána Kisu. Þaðan er haldið til vesturs
hjá Rauðkollum að Klakki en það er stutt að einu
stórbrotnasta gljúfri landsins Kerlingargljúfri, yfir
200 m djúpu. Frá Klakki er farið í norðvestur að Grákolli og yfir
Kerlingará en ámóts við Kerlingu er stefnan tekin í norðuraustur og
gengið sem leið liggur að skálunum í Ásgarði.
Öðrum en vel þjálfuðum göngugörpum er ráðlegt að faraþessa
leið í tveimur áföngum, djúp gil og fjölmargar ár,
sem stundum eru vatnsmikla, eru á leiðinni.
15.
Jökulkrókur-hringferð x
Vegalegnd
um 11 km, göngutími alls um 4-5 klst.
Gengið er upp
veginn til suðurs frá Ásgarði. Suður af Ásgarðsfjalli er haldið niður
á vegaslóðina austur í Þjórsárver uns komið er fram
hjá Loðmundi. Þaðan er stefnt á Blágnípu
(1076 m) og gengið vestur með Jökulfalli að sunnan og yfir
Kerlingarsprænu uns komið er aftur á veginn og hann genginn að
Ásgarði. Fögurfjallasýn, áreyrar Jökulfallsins og öræfakyrrð einkenna
þessa göngu.
16.
Jökulfallsbrú-Blágnípa xxx
Vegalegnd
um 15 km, göngutími alls um 5-7 klst.
Gönguferð að
Blágnípu (1076 m), miklum höfða suðvestur úr Hofsjökli. Farið erf
rá brúnni yfir Jökulfall. Gengið austur með því norðanmegin að
Blágnípu og norður með henni. Þaðan er auðgengið
á fjallið og sjást vel vatnaskil milli Suður-og Norðurlands. Sama leið
farin til baka, til að sleppa við votlendi vatnaskilanna.
17. Gengið með gili
Jökulfalls x
a)
Vegalegnd um 3 km, göngutími um 1-2 klst.
Gengið er
meðfram gili Jökulfallsins, frá brúnni niður að Blákvísl. Undir brúnni
er fossinn Hvinur. Ryðst áin niður þrengsli drjúgan veg en
breiðir heldur úr sér er kemur að Gýgjarfossi, en
neðan hans fellur Blákvísl í Jökulfallið og þar er afturkomið á akveginn.
b) Vegalegnd um 5
km, göngutími um 1½-2 klst.
Hægt er að
halda áfram frá Blákvísl niður með gili Jökulfalls með flugvöllinn á
hægri hönd. Hrikaleg gljúfur, hreiðurstæði heiðargæsa, flúðir og
fossar fanga hugann á göngunni sem lýkur í
Fossrófum við veginn til Kerlingarfjalla.
18. Austurfjöll xxxx
Vegalegnd
um 7 km, lækkun 200 m, hækkun 700 m og síðan lækkun um 400 m
og hækkun um 400 m, göngutími um 10 - 11 klst.
Lagt af stað
við Kastala á Jökulhrygg gengið á Loðmund síðan upp öxl og austanvið
snót upp á Snækoll. Þaðan yfir á Vesturgnípu og á Fannborg og að lokum
niður í Kastala aftur. Þetta eru um 10-11 klst og virkilega
skemmtileg leið, ef
skyggni er gott. Stórkostleg fjallasýn í allar höfuðáttir. Frekar
krefjandi leið
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!
Þessi texti er af vefnum
www.kerlingarfjoll.is |