|
Í Kverkfjöllum verður göngufólk
að vera viðbúið flestum veðurskilyrðum, roki, rigningu, þoku
og sandstormi og veðrabrigði geta verið snögg. Fara
verður að öllu með gát, einkum í íshellum og á jökli.
Hrun í hellunum og sprungur á jöklum eru alltaf varasamar,
ekki sízt í lélegu skyggni. Huga verður vel að öllum
búnaði til gönguferða áður en lagt er af stað. Ekki má
gleyma áttavitanum, reipum, manbroddum og sólgleraugum.
1. Sigurðarskáli
- Íslhellir
Vegalengdin frá Sigurðarskála að brún
Kverkjökuls er u.þ.b. 3 km. Gæta verður fyllstu
varúðar við göngu inn í hellinn, því alltaf má búast við
hruni, aðallega við jaðarinn og úr lofti hans.
2.
Virkisfell - Biskupsfell
Gengið er norður að Virkisfelli (1108m).
Biskupsfell (1240m) er 1,5 km lengra til austurs og bezt til uppgöngu
að sunnanverðu.
3.
Sigurparskáli – Kverkfjallarani - Hveragil
Leið 2 er fylgt yfir grýtt svæði og siðan 12 km til
austurs yfir sprungusvæði og hraun. Víða í Hveragili eru hverir,
sem allt að 62°C heitir.
4.
Um austanverðan Kverkfjallarana í Hveragil
U.þ.b. 38 km löng jeppaslóð liggur frá
Hvannalindum að Hveragili. Hún liggum um malaröldur og
hraun og framhjá smávötnum.
5. Vestur-Kverkfjöll
Gangan hefst við Sigurðarakála í átt að Kverkjökli,
norðan íshellisins og yfir jökulinn, upp grýttar hlíðar og sprungusvæði
á jökli og löngufönn. Þá er komið að Hveragili og skammt ofan þess
er skáli Jöklarannsóknarfélagsins í 1700 m hæð yfir sjó.
6.
Skarphéðinstindur - Kverkin - Sigurðarskáli
Frá skála Jöklarannsóknarfélagsins er hægt að ganga til
suðausturs yfir sigdæld Kverkfjalla á Skarphéðinstind (1936m), sem
verðlaunar erfiðið með frábæru útsýni á góðum degi. Hægt er að
ganga niður af tindinum vestan Kverkar.
7. Hvannalindir - Kreppuhryggur - Kreppuþröng
Vegur liggur frá
bílastæðinu í Hvannalindum til suðausturs frá enda Kreppuhryggjar.
Hann er í þægilegri göngufjarlægð og þaðan er gott útsýni yfir
Hvannalindir og Lindahraun í átt að Kverkfjöllum. Skammur spölur í
austur að Kreppuþröng.
8.
Hvannalindir - útilegumannarústir - Lindakeilir
Skammt er til útilegumannarústanna frá bílastæðinu í
Hvannalindum. Þaðan er u.þ.b. 2 km ganga upp á Lindakeili.
9. Hvannalindir - Lindaá -
Krikatjörn
Lengri gönguleið liggur frá útilegumannarústunum meðfram
Lindaá og jaðri Lindahrauns til suðurs að Krákatjörn eða Sjónarhæðar.
Sé haldið áfram, liggur leiðin að Hveragili.
10.
Lindafjðll - Rifnihnjúkur -
Upptyppingar
Gönguleiðin frá Sigurðarskála að brúnni yfir Jökulsá á
Fjöllum liggur um Krepputunguhraun vestan Lindafjalla og norðaustan
Rifnahnjúks (780m). Rifnihnjúkur er móbergshæð með bólstrabergi,
sem rís 100 m upp frá jafnsléttu. Hann er mjög sprunginn.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!

|