|
Göngluleiðir
eru margar og fjölbreyttar við Mývatn.
Hér fylgja stuttar lýsingar á helzt leiðum, sem eru merktar.
Upplýsingarnar hér eru byggðar á bæklingum heimamanna.
Vindbelgjarfjall
Leiðin
byrjar við Vagnbrekku og liggur um sléttlendi fyrsta hálftiímann að
fjallsrótum. Leiðin upp
fjallið tekur u.þ.b. annan hálftíma og er fremur brött á köflum
en er engum sæmilega hraustum til trafala.
Útsýnið af Vindbelgjarfjalli er frábært og kemur á óvart.
Skútustaðagígar
Lengri
hringleiðin liggur meðfram Stakhólstjörn og tekur u.þ.b. eina
klukkustund. Styttri
hringurinn, gegnum rauða hliðið að Hótel Mývatni tekur u.þ.b. 20
mínútur. Báðir
hringirnir eru auðveldir og gaman að fylgjast með fuglalífinu á leiðinni.
Kálfaströnd
Göngluleiðin
hefst við hliðið að Kálfaströnd og liggur að Klösum (Strípum)
og til baka. Þetta er létt
leið og oft má sjá litlar bleikjur skjótast um í vatninu á leiðinni.
Dimmuborgir
Gönguleiðirnar
í Dimmuborgum eru nokkrar og mislangar.
Þær eru merktar með litum og kort með leiðunum fæst hjá
Gestastofu í Reykjahlíðarþorpi á sumrin eða (oftast á sumrin) í
plastkassa við aðalinngang svæðisins. Litli hringur er næstur aðalinngangi og tekur u.þ.b. 15-20
mínútur. Stóri hringur nær
lengra inn í Borgirnar og tekur u.þ.b. 30-40 mínútur.
Kirkjuhringur getur tekið rúmlega klukkustund, eftir því, hvaða
leið er valin.
Stóragjá
– Grjótagjá – Hverfjall – Dimmuborgir
Þessi
leið hefst við vegamótin við Reykjahlíðarþorpið og tekur 2-3
klukkustundir. Hún liggur
fyrst um vel gróið land og síðan um rofið land. Frá Grjótagjá er fyrst gengið um sendið land og hraun að
Hverfjalli norðvestanverðu, þar sem aflíðandi stígur liggur upp á
brún og síðan allan hringinn, ef áhugi er fyrir hendi og geta
leyfir. Leiðin niður eða
upp að sunnanverðu er mun brattari.
Við skulum hafa í huga, að þetta eru einu leiðirnar upp og
niður Hverfjall, sem leyft er að nota.
Leiðin frá Hverfjalli að bílastæðinu á Borgarási handan
Dimmuborga liggur að hluta um Borgirnar.
Varmholtsgjá
Á
leiðinni milli Stórugjár og Grjótagjár er merkt hringleið um svæði,
sem er kallað Hraun. Það
er mjög gróið svæði, einkum birki, og gaman að skoða flóruna á
leiðinni. Leiðin er
falleg og skjólgóð og tekur u.þ.b. klukkutíma frá Stórugjá.
Norðurhringurinn
Norðurhringurinn,
norðan Mývatns, tekur 2-3 klukkutíma.
Hann hefst við þjóðveginn vestan Reykjahlíðarþorpsins og
liggur með vatnsbakkanum. Þar
sjást greinileg áhrif vatnsins á gróðurinn.
Vestan Slútness liggur leiðin yfir hraunið að Fagraneshólum
og síðan yfir þjóðveginn, þar sem er líka hægt að hefja gönguna.
Frá Fagraneshólum er haldið eftir gamla þjóðveginum til
Reykjahlíðar. Þetta er
auðveld ganga, sem gefur kost á fuglaskoðun í leiðinni.
Námafjall
Hverasvæðið
austan Námafjalls er kallað Hverir eða Hverarönd.
Það er eitthvert stærsta brennisteinssvæði landsins.
Þaðan liggur stígur upp fjallshlíðina að Námaskarði og þaðan
niður þjóðveginn til baka. Inni
á hverasvæðinu er full ástæða til að fara varlega, því að kæruleysi
hefur valdið alvarlegum slysum.
Hlíðarheiðarhringur
Gangan
hefst frá tjaldstæðinu Hlíð að Eldá og í áttina að Hlíðarfjalli.
Þar er allbrattur, merktur stígur upp fjallið. Þessi leið er ekki erfið og tekur 30-40 mínútur hvora
leið. Frá Hlíðarfjalli
liggur leiðin austur í Brunaborgir, sem er þyrping gjallgíga, og síðan
aftur til vesturs yfir hæðirnar að barnaskólanum, þar sem göngunni
lýkur. Þetta er falleg og
friðsæl leið og vænta má margra fuglategunda á leiðinni.
Leirhnjúkur
Leiðin
frá bílastæðinu ofan við Kröfluvirkjun að Leirhnjúk er flatlend
og auðveld. Hún liggur um hverasvæði norðaustan í fjallinu og bak við
það um furðuveröld gíga og hrauns frá 1984.
Þaðan er haldið upp á hæstu bungu Leirhnjúks, niður suðvesturhlíðina
og aftur að bílastæðinu. Þessi
ganga tekur 45-60 mínútur.
Kröfluleiðin
Þessi
leið hefst við barnaskólann og liggur að Leirhnjúki suðvestanverðum
um gíga- og hraunsvæði frá 1984.
Þaðan liggur leiðin um hraun og mela að Hlíðarfjalli, á bökkum
Eldár og niður að Gestastofu aftur.
Þessi ganga tekur 3-4 klst. og er fremur auðveld.
Dalfjallsleið
Merktur
göngustígur liggur frá þjóðveginum í Námaskarði að Leirhnjúki
eftir Dalfjalli endilöngu með góðu útsýni alla leið.
Haldið er yfir hraunbreiðu og upp stórt misgengi alla leið að
bílastæðinu við Leirhnjúk. Gangan
tekur 2-3 klst. en er alls ekki erfið.
Gígar og misgengi í Dalfjalli gefa góða hugmynd um eldvirkni
og jarðfræði svæðisins.
Víti
Stutt
gönguleið liggur á börmum Vítis, sem varð til í upphafi Mývatnselda
árið 1724. Á leiðinni er hverasvæði, þar sem aðgátar er þörf.
Göngutíminn á þessari auðveldu leið er 20-30 mínútur.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar! |