|
Valahnúkur
(458m) er vestan við mynni Langadals, þar sem Skagfjörðsskáli Ferðafélags
Íslands stendur. Gangan
upp er létt og útsýnið ofan af honum á góðum degi er erfiðisins
virði. Hyggist ferðalangar
ganga lengra, er upplagt að ganga niður í miðjar hlíðar á slóða,
sem liggur í honum sunnanverðum til vesturs og norður yfir Merkurrana.
Þaðan liggur leiðin niður á við um Húsadal til baka.
Á þeirri leið er upplagt að koma við í Valahnúksbóli, sem
var náttstaður gangnamanna vestan í hnúknum neðanverðum.
Norðan Merkurranans eru rústir Þuríðarstaða, sem eru taldar
vera frá landnámi Þórsmerkur. Sóttarhellir
er spölkorn utan við Húsadal. Á
leiðinni upp Húsadalinn eru yngri rústir og frá þeim er haldið upp
að hellisskútanum Snorraríki og yfir haftið milli Húsadals og
Langadals.
Hamraskógar
eru
vinsæll áfangi á gönguleið. Þeir
eru norðan Langadals niður að Þröngá og norðan hennar eru
Almenningar, þar sem Steinfinnstaðir eru taldir hafa staðið.
Enn þá eru nokkur sýnileg vegummerki þessa landnámsbæjar.
Það er upplagt að kíkja á rauðu gjallgígana á Fauskheiði
í leiðinni.
Rjúpnafell
krefst alllangrar göngu frá Skagfjörðsskála og hægast er að ganga
upp Slyppugil að Tindfjallagili, yfir það og upp suðvesturöxlina.
Rjúpnafell er allbratt og gróið og tiltölulega auðvelt uppgöngu. Þaðan er útsýnið frábært á björtum degi.
Búðarhamar
er skammt norðan Krossár innarlega og greiðast að fylgja ánni.
Margir vilja sjá meira og ganga upp Slyppugil og þræða mjóan
stíg og stundum tæpan í norðanverðum Tindfjöllum og suður sléttuna
austan þeirra. Stangarháls
er líka verðugt viðfangsefni og styttri leið niður á aura Krossár
til baka.
Stóriendi
er ágætisáfangi fyrir þá, sem hafa takmarkaðan tíma.
Þá er fyrst haldið upp Slyppugil og háhrygginn að Tindfjöllum
og um lítið skarð, niður í vestanverðan Stóraenda.
Þaðan er haldið með Krossá til baka.
Uppi við skógarmörkin er stór og stæðilegur steinbogi.
Krossárjökull
og Tungnakvíslarjökull
krefjast talsverðs göngutíma og það borgar sig að kíkja á
Teigstungurnar, ef tími er til.
Heiðarhorn,
sem vel sést til úr Langadal, freistar margra.
Leiðin upp liggur um Strákagil neðanvert og síðan upp
hvilftina vestan Heiðarhornsins, þar sem gott er að ganga upp.
Þaðan er hægt að halda göngunni áfram um Morinsheiði,
Heljarkamb og Bröttufönn að skálunum á Fimmvörðuhálsi og alla
leið niður að Skógum. Sumir
kjósa að skipta göngunni yfir Fimmvörðuháls og dvelja nótt í skálunum
þar.
Réttarfell
og Útigönguhöfði.
Leiðin upp í skarðið á milli þeirra liggur upp úr Básum
og síðan gengið torfærulaust beint upp á hvort fjallið fyrir sig.
Einnig er fær leið upp úr Hvannárgili, sem er virkilega
skemmtilegt að ganga um.
Hátindar
bjóða gott útsýni í góðu veðri.
Leiðin upp liggur um Stakkholtið, rétt vestan mynnis Hvannárgilsins.
Gígjökul,
Steinsholtsjökul
og lónin þar og Stakkholtsgjá er bezt að skoða á leið úr
eða í Mörkina, því að allir þessir staðir eru lítið úrleiðis.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!
Hér er ekki
getið um tíma hverrar gönguleiðar fyrir sig en góð þumalputtaregla
segir, að menn gangi 4 km á klst. á jafnsléttu og bæti við einni klst.
fyrir hverja 450 í hækkun. |