Gönguleiðir á austurlandi víknaslóðir 13 14,

Gönguleiðir Ísland

GPS

GÖNGULEIÐIR Á AUSTURLANDI
VÍKNASLÓÐIR 13 og 14

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

13. Vatnsskarðsvegur - Stórurð
2,5 klst. 7,1 km.

Hækkun um 150m. Fremur létt ganga neðan Rjúpnafells. Komið inn í Stórurð neðarlega.

Athugið að það er vel merktur hringur um Urðina og þar er gestabók.

14. Vatnsskarð (431 m) - Stórurð
2,5 klst. 6,5 km.

Fremur létt ganga, að mestu leyti um mela og urðir. Gengið yfir Geldingafjall (640 m) og inn vestan við Súlur. Mjög gott útsýni á leiðinni yfir Njarðvík, Fljótsdalshérað og Stórurð.

Fyrsta brekkan upp úr skarðinu er nokkuð stíf en eftir það er aflíðandi halli upp á Geldingafjallið, hækkun um 210 m.

Ef þið ætlið bara að fara skotferð í Stórurð og til baka í bílinn aftur þá mælum við eindregið með því að fara af Vatnsskarði. Ágætt er að fara í hring, þ.e. byrja á Vatnsskarði leið 14 og fara svo til baka leið 13.   Þá þarf að vísu að ganga upp og sækja bílinn en það er ekki löng leið.

Til ferðar í Stóruð er gott að hafa heilan dag því hægt er að dvelja þar heilan dag og skoða svæðið.

Athugið að það er vel merktur hringur um Urðina og þar er gestabók.

Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér minningarnar!


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM